Vill leika illmenni á móti Pattinson
Brad Pitt gæti vel hugsað sér að leika andstæðing James Bond þegar Robert Pattinson tekur við hlutverki njósnarans. AFP/Jonathan Bachman
Brad Pitt segist gjarnan vilja leika illmennið sem njósnarinn James Bond þarf næst að kljást við. Pitt var á frumsýningu myndarinnar The Further Mis-Adventures of Cliff Booth í Los Angeles í gær þegar hann frétti að Robert Pattinson hefði verið valinn í hlutverk Bonds.
„Mér líst frábærlega á þetta. Ég er hrifinn af því sem hann hefur verið að gera og þeim hlutverkum sem hann hefur valið sér,“ sagði Pitt í samtali við fjölmiðla vestanhafs.
Pitt sagðist sjálfur vera til í að feta í fótspor spænska leikarans Javiers Bardem, sem lék illmennið Raoul Silva í Skyfall árið 2012. Þeir Bardem léku saman í kvikmyndinni F1.
„Javier minn gerði þetta svo vel. Það er vandasamt að feta í fótspor hans en ég væri til í að spreyta mig,“ sagði Pitt.
Grace Jones og Sean Bean eru meðal þeirra sem hafa leikið andstæðinga Bonds í gegnum tíðina. Í tíð Daniels Craig tókust meðal annarra Mads Mikkelsen, Christoph Waltz og Rami Malek á við njósnarann á hvíta tjaldinu.
Pattinson tekur við hlutverki breska njósnarans af Daniel Craig, sem fór síðast með það árið 2021. Denis Villeneuve leikstýrir næstu mynd, sem verður sú 26. í röðinni.
Brad Pitt ásamt kærustu sinni, Ines de Ramon, á frumsýningu kvikmyndarinnar Heart of the Beast í september. AFP/Jason Kempin
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
