Telja óþarft að íslensk heimili eigi joðtöflur
Joðtöflur innihalda ógeislavirkt joð sem getur komið í veg fyrir upptöku geislavirks joðs í skjaldkirtilinn séu þær teknar á réttum tíma. Þær veita hins vegar ekki vernd gegn öðrum geislavirkum efnum eða geislun almennt. Ljósmynd/Embætti landlæknis
Ekki er ástæða fyrir almenning á Íslandi að kaupa eða taka joðtöflur vegna ástandsins í Úkraínu. Að mati Geislavarna ríkisins er afar ólíklegt að geislavirk efni frá hugsanlegu kjarnorkuslysi þar berist hingað í því magni að þörf verði á sérstökum aðgerðum.
Þetta kemur fram í tilkynningu embættis landlæknis vegna nýlegrar sameiginlegrar yfirlýsingar evrópskra og norrænna geislavarna- og kjarnorkueftirlitsstofnana. Í yfirlýsingunni er lýst áhyggjum af aukinni hættu á kjarnorkuslysum vegna árása Rússlands á orkuinnviði Úkraínu.
Þrátt fyrir þær áhyggjur telja Geislavarnir ríkisins afar ólíklegt að hugsanlegt slys kallaði á inntöku joðtaflna, skýlingu eða brottflutning fólks hér á landi.
Mikil fjarlægð dragi úr áhrifum
Í tilkynningunni segir að geislavirk efni myndu dreifast og þynnast verulega áður en þau gætu borist til Íslands vegna mikillar fjarlægðar frá Úkraínu.
Geislavirkt joð, joð-131, hafi jafnframt tiltölulega stuttan helmingunartíma, um átta daga. Því dragi úr geislavirkni þess með tímanum.
Geislavarnir ríkisins hafa fylgst náið með þróun mála í Úkraínu frá upphafi stríðsins og halda því áfram í samstarfi við erlenda aðila. Stofnunin gerir einnig reglulega spár um hugsanlega dreifingu geislavirkra efna frá kjarnorkuslysi í Úkraínu og upplýsir innlenda samstarfsaðila eftir því sem við á.
Joðtöflur veita ekki almenna geislavörn
Áréttað er að joðtöflur eigi eingöngu að taka samkvæmt fyrirmælum heilbrigðisyfirvalda. Ástæðulaus inntaka veiti enga gagnlega vernd og geti valdið aukaverkunum, meðal annars truflunum á starfsemi skjaldkirtils.
Við alvarlegt kjarnorkuslys getur geislavirkt joð losnað út í umhverfið. Berist það inn í líkamann getur það safnast fyrir í skjaldkirtli og aukið hættu á skjaldkirtilskrabbameini, einkum hjá börnum og ungu fólki.
Joðtöflur innihalda ógeislavirkt joð sem getur komið í veg fyrir upptöku geislavirks joðs í skjaldkirtilinn séu þær teknar á réttum tíma. Þær veita hins vegar ekki vernd gegn öðrum geislavirkum efnum eða geislun almennt.
Öryggisbirgðir til staðar
Öryggisbirgðir af joðtöflum eru til á vegum sóttvarnalæknis ef svo ólíklega vildi til að þeirra yrði þörf. Ekki er því mælt með því að almenningur á Íslandi kaupi joðtöflur vegna hugsanlegrar geislavirkni af völdum stríðsins í Úkraínu.
Að sameiginlegu yfirlýsingunni standa samtök kjarnorkueftirlitsstofnana í Vestur-Evrópu, WENRA, samtök yfirmanna evrópskra geislavarnastofnana, HERCA, og yfirmenn norrænna geislavarna- og kjarnöryggisstjórnvalda, NORA.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗