Svöruðu neyðarkalli Gunnars Smára - „Við erum meyr og hálf hissa yfir þessum hlýhug“
Gunnar Smári Egilsson ritstjóri Samstöðvarinnar lýsir í nýrri Facebook-færslu yfir þakklæti og segir að nokkrir tugir manna hafi brugðist við neyðarkalli hans vegna fjárþarfar stöðvarinnar. Segir Gunnar Smári að hann og annað starfsfólk stöðvarinnar sé djúpt snortið og þakklátt fyrir stuðninginn.
Gunnar Smári hafði áður sent út neyðarkall og sagt stöðina í mikilli fjárþörf þar sem dregist hefði að fá greiddan fjölmiðlastyrk frá ríkinu. Óskaði Gunnar Smári eftir að áskrifendur stöðvarinnar bættu við framlög sín og einnig hvatti hann fleiri til að slást í hópinn.
Sjá einnig: Gunnar Smári sendir út neyðarkall – „Ritstjóri á barmi taugaáfalls af fjárhagsáhyggjum“
Í nýrri Facebook-færslu um viðbrögðin við neyðarkallinu segir Gunnar Smári að starfsfólk Samtöðvarinnar sé að reyna að draga hana áfram. Von sé á styrknum frá ríkinu en hann hafi ekki borist og gert hafi verið ráð fyrir því að hann ætti nú þegar að hafa verið greiddur út. Þess vegna hafi beiðnin um hjálp komið og henni hafi sannarlega verið svarað. Nú þegar hafi um 60 manns lagt inn á reikning Alþýðufélagsins, sem heldur úti Samstöðinni, 1,23 milljónir króna, tólf manns skráð sig fyrir áskrift og einn tvöfaldað sína og þessar 13 áskriftir nemi samtals 429 þúsund krónum á ári:
„Við erum meir og hálf hissa yfir þessum hlýhug, en samt ekki alveg því við finnum alla daga fyrir miklum stuðningi sem Samstöðin nýtur. Ef okkur tekst að virkja hann mun ekkert stöðva Samstöðina, hún mun vaxa og eflast, sigla seglum þöndum inn í nýja tíma ...
... en þetta verður auðvitað aldrei létt. Rekstur fjölmiðla gengur allsstaðar illa og útgerð Samstöðvarinnar er Brattabrekka endalaust. En það er brekka sem við viljum leggja í saman; starfsfólk, sjálfboðaliðar og áskrifendur.“
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗