Mackintosh 90 ára: Gömlu góðu tímarnir lifna við

Quality Street, sem margir Íslendingar þekkja sem Mackintosh, fagnar 90 ára afmæli í ár. Af því tilefni er komin sérstök afmælisdós á markað. Til vinstri má sjá gamla auglýsingu fyrir konfektið. Samsett mynd

Hvað eiga Pétur Pan, 11 kjúklingar, íslenska fríhöfnin og jólakonfekt sameiginlegt? Svarið er Quality Street, eða Mackintosh eins og margir þekkja það enn! Quality Street fagnar 90 ára afmæli í ár og af því tilefni kemur sérstök afmælisdós á markað, gamlar minningar eru rifjaðar upp og tveir gamlir kunningjar snúa aftur í sviðsljósið.

Litríku molarnir, skrjáfið í umbúðunum og spennan við að opna Mackintosh-dósina hafa fylgt íslenskum jólum í áratugi. Sumir veiða karamellurnar upp úr dósinni, aðrir leita að fjólubláa molanum og svo eru auðvitað þeir sem skilja alltaf sömu molana eftir.

En hvernig varð þetta litríka konfekt svona stór hluti af íslenskum jólum?

Konfekt fyrir fína fólkið? Ekki lengur

Árið 1936 fékk Harold Mackintosh í Halifax á Englandi snjalla hugmynd: Af hverju ætti bara fína fólkið að geta notið góðs konfekts? Úr varð Quality Street, litrík blanda af súkkulaði og karamellum í fallegri dós. Fyrsta dósin innihélt 18 tegundir og kostaði tvo skildinga. Hugmyndin sló heldur betur í gegn.

Svona litu gömlu Mackintosh-dósirnar út. Man einhver eftir þeim? Ljósmynd/Aðsend

Mackintosh í tonnavís

Áður fyrr var Mackintosh eftirsóttur varningur sem gjarnan kom til landsins í ferðatöskum Íslendinga á heimleið úr útlöndum.

Þegar komufarþegar fengu að versla í fríhöfninni árið 1970 var ekki að sökum að spyrja. Í frétt árið 1971 kom fram að þar seldust um 3,5 tonn af Mackintosh á mánuði!

Mackintosh rataði meira að segja í lögreglufréttir. Í júní 1971 greindi Morgunblaðið frá því að lögreglan hefði fundið 36 dósir af ótollafgreiddu Mackintosh og 11 kjúklinga í bifreið í Reykjavík. Óvenjuleg blanda, svo ekki sé meira sagt!

Gömul auglýsing fyrir konfektið sem Íslendingar þekkja sem Mackintosh.

Gömul auglýsing fyrir konfektið sem Íslendingar þekkja sem Mackintosh. Ljósmynd/Aðsend

Hvað eiga Pétur Pan og Mackintosh sameiginlegt?

Nafnið Quality Street er sótt í samnefnt leikrit eftir J. M. Barrie, höfund Péturs Pan.

Á fyrstu umbúðunum birtust tvær glæsilegar persónur, Major Quality og Miss Sweetly, sem urðu þekkt andlit vörumerkisins.

Gamlir kunningjar snúa aftur 

Í tilefni 90 ára afmælisins snúa Major Quality og Miss Sweetly aftur í sviðsljósið og munu prýða allt markaðsefni afmælisins.

Til að fagna þessum merku tímamótum kemur einnig sérstök 90 ára afmælisdós á markað. Dósin sækir innblástur í sögu Quality Street og gamla góða Mackintosh-útlitið sem margir þekkja frá fyrri tíð.

Með afmælisdósinni og endurkomu gömlu persónanna er slegið á strengi fortíðarþrár og minnt á þær fjölmörgu góðu stundir sem Mackintosh hefur átt þátt í að skapa í gegnum árin.

Afmælisdós Quality Street sækir innblástur í gömlu dósirnar sem margir þekkja frá fyrri tíð. Ljósmynd/Aðsend

Fjólublái molinn lifir góðu lífi

Einn þekktasti molinn í Quality Street, The Purple One, er enn á sínum stað. En vissir þú að upphaflega var brasilíuhneta í honum?

Í seinni heimsstyrjöldinni varð skortur á brasilíuhnetum og því var skipt yfir í heslihnetur. Sú breyting hefur haldist síðan og fjólublái molinn er enn einn þeirra sem margir sækjast fyrst eftir.

Þegar síðasti molinn var búinn

Á mörgum íslenskum heimilum var Mackintosh-dósinni sjaldnast hent þegar konfektið kláraðist. Hún fékk einfaldlega nýtt hlutverk sem ílát fyrir smákökur, saumadót eða annað smálegt.

Og hver kannast ekki við vonbrigðin þegar Mackintosh-dósin var opnuð í von um konfekt en í staðinn blöstu við nálar og tvinni?

90 ár og enn er barist um síðasta molann

Á 90 árum hafa umbúðirnar breyst og molar komið og farið. En eitt er óbreytt: Allir eiga sinn uppáhaldsmola.

Quality Street, sem margir kalla enn Mackintosh, hefur fylgt íslenskum fjölskyldum í áratugi. Dósirnar hafa verið opnaðar í jólaboðum, gestum boðið konfekt og því jafnvel verið komið fyrir í efstu skápum svo það kláraðist ekki fyrir jólin.

Og þótt smekkurinn sé misjafn er eitt sem margir geta verið sammála um:

Hvað væru jólin eiginlega án Mackintosh?

Quality Street hefur fylgt íslenskum jólum í áratugi undir hinu kunnuglega Mackintosh-nafni. Ljósmynd/Aðsend

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅