Carbfix skuldar Orkuveitunni 6,6 milljarða króna

Carbfix er háð lánalínum Orkuveitunnar.

Carbfix er háð lánalínum Orkuveitunnar. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon

Carbfix skuldaði Orkuveitu Reykjavíkur tæpa 6,6 milljarða króna í árslok 2025. Í heild voru þá tæplega 54 ársverk hjá fyrirtækinu en eins og fram kom fyrr í dag hafa átta starfsgildi verið lögð niður og fjögur færast til Orkuveitunnar. Ársverk verða því fyrir um 42 eftir uppsagnir og tilfærslur.

Heildarskuldir félagsins námu um 8,2 milljörðum króna og þar af 127 milljónum króna vegna skuldanna við móðurfélagið Carbfix ehf.

Lánsheimild upp á 12 milljarða króna

Skuldin við Orkuveituna er lán að upphæð 6,5 milljarðar króna auk annarra skulda upp á 86 milljónir króna. Ekki er greint frá veðtryggingum vegna láns Orkuveitunnar til Carbfix í ársreikningi félagsins.

Í febrúar á þessu ári samþykkti stjórn Orkuveitunnar að framlengja lánalínuna til ársloka 2028. Lánsheimildin er alls 12 milljarðar króna, en var því aðeins nýtt að hluta í lok síðasta árs.

Háð stuðningi Orkuveitunnar

Fram kemur í ársreikningi að Carbfix hafi tapað um 1,6 milljörðum króna á síðasta ári og eigið fé var neikvætt um 2,1 milljarð í árslok. Í ársreikningnum segja stjórnendur áframhaldandi fjárhagslegan stuðning Orkuveitunnar og uppfærðar sjóðstreymisspár gera félaginu kleift að standa við skuldbindingar sínar.

Aðrar skuldir voru meðal annars viðskipta- og leiguskuldir, en ekki eru allir kröfuhafar nafngreindir í ársreikningnum. Innan heildarskulda eru einnig fyrirframgreiðslur viðskiptavinar vegna framtíðarafnota af innviðum félagsins.

Carbfix vinnur að varanlegri bindingu koldíoxíðs í bergi. Félagið hefur boðað minni áherslu á eigin uppbyggingu stórra verkefna og aukna áherslu á sérfræðiþjónustu sem byggir á tækni þess og hugverkaréttindum.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅