Eru vændiskaup glæpur? – Fjölmenni á sýningu heimildarmyndar

Heimildarmyndin „Er þetta femínismi? Glæpavæðing kynlífskaupa á Íslandi“ var frumsýnd í Bíó Paradís að viðstöddu fjölmenni, laugardaginn 14. nóvember. Að lokinni sýningu myndarinnar voru fjörlega pallborðsumræður um efni hennar. 

Myndin endurspeglar hugmyndafræðilegan ágreining innan femínistahreyfingarinnar um vændi og lagasetningu um það. Baráttusamtökin Rauða reghnhlífin sendi DV eftirfarandi fréttatilkynningu um viðburðinn. Meðfylgjandi eru einnig myndir frá viðburðinum og kynningarstikla úr heimildarmyndinni: 

„Myndin ‘Er Þetta Femínismi? Glæpavæðing kynlífskaupa á Íslandi’ var frumsýnd í Bíó Paradís, laugardaginn 14. nóvember fyrir fullum sal. Að sýningu lokinni voru pallborðsumræður með Logn Blómdal frá Rauðu Regnhlífinni, Leo frá Red Umbrella Sweden, Kaytlin Bailey frá fjölmiðla samtökunum Old Pros og Nönnu Gunnars verkefnisstýru ráðstefnunnar sem heimildarmyndin snýst um.

Umræðurnar voru áhrifaríkar og spennandi og stóðu yfir í meira en klukkutíma eftir sýningu. Eftir viðburðinn skrifuðu áhorfendur nöfn sín á rauðu regnhlífina, sem tákn um stuðning við réttindabaráttu kynlífsverkafólks og þolenda í vændi á Íslandi.

Er Þetta Femínismi? er c.a 20 mínútna heimildarmynd um fyrstu ráðstefnu kynlífsverkafólks á Ísland, en hún var haldin í Norræna húsinu þann 1. nóvember 2025. Ráðstefnan gaf nýja sýn á Norræna/sænska módelið, sem refsar fyrir kaup en ekki sölu á vændi/kynlífsþjónustu, og sýnir að raunin er aðeins flóknari. Myndin leggur áherslu á raddir þeirra sem hafa reynslu af því að selja vændi/kynlífsþjónustu á Norðurlöndunum.

Í myndinni er rætt við aðalfyrirlesara ráðstefnunnar, Birnu Gústafsson MS, lýðheilsufræðing um afglæpavæðingu vændis sem lýðheilsumál. Hjarnæm viðtöl fylgja um áhrif Norræna módelsins á konur sem það er ætlað að vernda. Opnunarræða Margrétar Erlu Maack, fjölmiðla- og sviðslistakonu er svo ofin inn í myndina.

Ráðstefnan var skipulögð af tveimur samtökum kynlífsverksfólks - Rauðu Regnhlífinni og Old Pros. Þar kom saman kynlífsverkafólk frá Rauðu Regnhlífinni, Red Umbrella Sweden, PION - hagsmunasamtök kynlífsverkafólks í Noregi. Samtökin héldu öll erindi og tóku þátt í pallborðsumræðum fyrir framan fjölmennan hóp áhorfenda. 

Ísland nýtur orðspor þess að vera femínískt land. Norræna módelið hefur víða verið kynnt sem femínísk ‘lausn’ á vændi, en heimildarmyndin dregur þá mynd í efa með því að gefa innsýn inn í raunveruleika þeirra sem lögin eru ætluð að vernda.

Rauða Regnhlífin eru fyrstu og einu samtökin á Íslandi sem berjast fyrir réttindum og öryggi kynlífsverkafólks og þeirra sem selja eigin vændi. Old Pros eru bandarísk samtök sem nota frásagnir og sögur til þess að berjast fyrir réttindum kynlífsverkafólks.“

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅