Vara við verðhækkunum á byggingarvörum

Félagið segir að aukinn kostnaður muni skila sér í hærra verði á mikilvægum aðföngum til mannvirkjagerðar og annarra framkvæmda. mbl.is/Golli

Félag atvinnurekenda varar við því að innleiðing svonefnds CBAM-kerfis muni auka kostnað innflytjenda og leiða til verðhækkana á byggingarvörum, lögnum, festingum og tæknibúnaði.

Félagið telur áhrifin á innlenda heildverslun vanmetin og fer fram á að minnsta kosti tveggja ára aðlögunarfrest.

Þetta kemur fram í umsögn félagsins til umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis um frumvarp til laga um aðlögunarkerfi við landamæri vegna kolefnis. Umsögnin er dagsett 5. nóvember.

Kerfið felur meðal annars í sér kröfur um upplýsingar um losun við framleiðslu vara sem falla undir það. Félagið styður almenn markmið um loftslagsvernd en telur að við undirbúning frumvarpsins hafi of mikil áhersla verið lögð á stöðu stóriðju og álvera. Áhrifum á heildverslun, innflytjendur og dreifingaraðila hafi ekki verið gefinn nægur gaumur.

Þúsundir vörunúmera hjá einum innflytjanda

Samkvæmt umsögninni geta allt að átta til níu þúsund virk vörunúmer hjá einstökum innflytjanda fallið undir kerfið. Þar sé meðal annars um að ræða festingar, rör og aðra smærri íhluti sem berist bæði í litlum sendingum og í gámum.

Félagið telur óraunhæft að ætlast til þess að fyrirtæki haldi sérstakt kolefnisbókhald, afli framleiðslugagna og reikni losun vegna þúsunda ólíkra vörunúmera. Þetta kalli á mikla handavinnu, breytingar á tölvukerfum og ráðningu starfsfólks til að sinna flokkun og skráningu.

Aukinn kostnaður muni að mati félagsins skila sér í hærra verði á mikilvægum aðföngum til mannvirkjagerðar og annarra framkvæmda.

Svarleysi birgja geti reynst dýrkeypt

Félagið segir reynslu innflytjenda sýna að fyrirspurnum til erlendra birgja um losun við framleiðslu sé ekki svarað. Íslensk fyrirtæki séu gjarnan svo smáir viðskiptavinir stórra alþjóðlegra framleiðenda að þau geti ekki knúið fram nauðsynlegar upplýsingar.

Þegar upplýsingarnar fáist ekki þurfi innflytjendur að nota sjálfgefin viðmiðunargildi Evrópusambandsins. Félagið telur þau að jafnaði mjög há og segir notkun þeirra hækka kostnað við innflutning verulega.

Það jafngildi í reynd „óréttmætum refsitollum“ fyrir innflytjendur sem hafi ekki bolmagn til að afla upplýsinga um raunverulega losun frá birgjum sínum.

Vara við töfum við tollafgreiðslu

Í umsögninni er einnig gagnrýnt að samkvæmt frumvarpinu þurfi að skrá átta stafa evrópskt vörunúmer til viðbótar við íslenskt tollskrárnúmer þegar ekki sé fullt samræmi milli tollskránna.

Félagið telur þetta kalla á handvirka endurflokkun þúsunda vörunúmera og breytingar á tölvukerfum fyrirtækja. Það auki hættu á mistökum, töfum við tollafgreiðslu og kostnaði.

Félagið krefst þess að Skatturinn birti opinbera, rafræna og staðfesta samsvörunartöflu milli íslenskra tollnúmera og evrópskra vörunúmera.

„Það getur ekki verið hlutverk starfsfólks í innkaupum og vöruhúsum að leysa úr ósamræmi í tollskrám ríkisins,“ segir í umsögninni.

Telja stjórnsýsluna óundirbúna

Félagið telur stjórnsýsluna ekki tilbúna til að taka við verkefninu. Í umsögninni segir að Umhverfis- og orkustofnun hafi þá ekki opnað rafræna gátt þar sem fyrirtæki gætu sótt um tilskilin leyfi. Jafnframt hafi skýrar leiðbeiningar skort og fáir sérfræðingar innanlands getað aðstoðað fyrirtæki.

Félagið mótmælir einnig fyrirhuguðu afgreiðslugjaldi vegna umsókna um stöðu skýrslugjafa. Ósanngjarnt sé að fyrirtæki greiði sérstaklega fyrir leyfi til að sinna lögboðnum skyldum sínum, ekki síst þegar ríkissjóður geri ráð fyrir hundruðum milljóna króna í tekjur af sölu vottorða.

Óttast minni samkeppni

Félagið varar við því að óraunhæfar kröfur geti gert íslenskum fyrirtækjum nær ómögulegt að eiga viðskipti við birgja utan EES. Það geti dregið úr samkeppni og þrengt valkosti innflytjenda.

Farið er fram á að lögfestur verði að minnsta kosti 24 mánaða aðlögunarfrestur og að beitingu stjórnvaldssekta og leyfissviptinga verði frestað. Jafnframt verði fyrirhuguð gjaldtaka felld niður, samsvörunartafla tollnúmera birt og hlutverk tollmiðlara gert raunhæft.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅