Trump horfir til funda með Pútín og Kim
Donald Trump Bandaríkjaforseti sagðist í dag hafa augastað á einkafundum með Vladimír Pútín Rússlandsforseta og Kim Jong-un, leiðtoga Norður-Kóreu.
Trump er nýlagður af stað í Asíuför þar sem hann sækist eftir árangri í utanríkismálum eftir þungt kosningaáfall heima fyrir.
Ummælin féllu tæpri klukkustund eftir að Trump kom til Filippseyja til að sækja leiðtogafund Samtaka Suðaustur-Asíuríkja, ASEAN. Þar stóðu um tvö þúsund mótmælendur andspænis lögreglu með borða sem á stóð meðal annars „Trump burt núna“ og „Höfnum Pax Silica“. Hið síðarnefnda vísar til bandarísks verkefnis um uppbyggingu aðfangakeðju.
Trump ræddi við blaðamenn fyrir fund með leiðtogum svonefndra Quad-ríkja í tengslum við ASEAN-fundinn. Hann sagðist fús til að hitta Pútín ef tækifæri gæfist á næsta áfangastað ferðarinnar, leiðtogafundi Efnahagssamvinnuráðs Asíu- og Kyrrahafsríkja, APEC, í Shenzhen í Kína.
„Ef það er í boði myndi ég gera það,“ sagði Trump þegar hann stillti sér upp fyrir myndatöku með Narendra Modi, forsætisráðherra Indlands, Sanae Takaichi, forsætisráðherra Japans, og Anthony Albanese, forsætisráðherra Ástralíu.
Hann bætti við að Kim „myndi vilja“ hitta sig í Kína. Aðeins nokkrum klukkustundum áður höfðu kínversk stjórnvöld sagst ekki hafa upplýsingar um fund þeirra tveggja.
Trump er nýlagður af stað í Asíuför þar sem hann sækist eftir árangri í utanríkismálum eftir þungt kosningaáfall heima fyrir. AFP
Fyrsti Quad-fundurinn frá endurkomu Trumps
Þetta var fyrsti leiðtogafundur Quad-ríkjanna frá því að Trump tók aftur við embætti í janúar 2025. Samstarf ríkjanna fjögurra miðar í meginatriðum að því að vega upp á móti áhrifum Kína á svæðinu.
Ryan Hass hjá Brookings-stofnuninni segir ríkin hafa aukið samhæfingu sín á milli án mikillar athygli. Svo lítill tími hafi þó verið ætlaður fundinum í dag að ólíklegt væri að þar gæfist færi á öðru en hefðbundnum kurteisissamskiptum.
Tímasetningin skipti engu að síður máli, enda séu aðeins tveir dagar þar til Trump sæki sögulegan fund með Xi Jinping Kínaforseta og Pútín.
„Þetta er leið til að verja Trump fyrir gagnrýni um að láta undan einræðisleiðtogum þegar hann hittir Xi og Pútín í Shenzhen,“ segir Hass.
Segir Bandaríkin munu ná Kína á tíu mánuðum
Þótt leiðtogar ASEAN-ríkjanna ellefu hafi undanfarna þrjá daga rætt fjölmörg svæðisbundin málefni hafa tollaaðgerðir Trumps sett mikinn svip á fundinn.
Li Qiang, forsætisráðherra Kína, gagnrýndi í gær það sem hann kallaði „mótstraum einhliða aðgerða og verndarstefnu“. Jafnframt vakti hann athygli á vaxandi viðskiptum Kína við ASEAN-ríkin.
Luiz Inacio Lula da Silva, forseti Brasilíu, og Mark Carney, forsætisráðherra Kanada, tóku í svipaðan streng um viðskiptamál. Báðir nefndu sérstaklega nauðsyn þess að draga úr því hversu háð ríki þeirra væru bandaríska markaðnum.
Trump gaf í dag engin merki um að slaka á í viðskiptastríðinu við Kína. Hann sagði Bandaríkin myndu ná Kínverjum í framleiðslu sjaldgæfra jarðmálma „innan tíu mánaða“.
„Við framleiðum sjaldgæfa jarðmálma í meira magni en nokkru sinni fyrr. Við munum ná þeim innan tíu mánaða, segja þeir,“ sagði hann.
Nýjar takmarkanir á örgjörvaflutningum
Nokkrum klukkustundum áður en Trump lenti í Maníla tilkynntu bandarísk stjórnvöld nýjar reglur um flutning háþróaðra gervigreindarörgjörva. Þær gætu vakið óánægju meðal ASEAN-ríkja.
Fyrirtæki sem senda slíka örgjörva til Singapúr, Malasíu, Taílands og Indónesíu þurfa nú sérstakt leyfi. Bandarísk stjórnvöld telja meiri hættu en almennt gerist á að örgjörvar sem sendir eru til þessara ríkja verði fluttir áfram í trássi við útflutningstakmarkanir.
Stjórnvöld í Singapúr segjast nú kanna leiðir til að tryggja fyrirtækjum í borgríkinu aðgang að örgjörvunum með fyrirkomulagi sem uppfylli kröfur um traust.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
