Laugavegurinn sameinar þrjár kynslóðir

Anna Kristín, Tyler og Höskuldur.

Anna Kristín, Tyler og Höskuldur. Ljósmynd/ÍBR

Laugavegshlaupið hefur lengi skipað sérstakan sess hjá Höskuldi og fjölskyldu hans. Næsta sumar hyggst hann taka þátt í 26. sinn og verður ekki einn á ferð.

Anna Kristín, dóttir hans, stefnir á sitt tíunda hlaup og Tyler, barnabarn hans, á sitt sjötta þegar hlaupið fagnar 30 ára afmæli árið 2027.

Þetta verður ekki í fyrsta sinn sem þrír ættliðir fjölskyldunnar taka þátt sama árið. Þau voru einnig öll á meðal þátttakenda árin 2020 og 2025.

„Kannski voru þetta bara örlögin eða tilviljun,“ segir Anna Kristín í tilkynningu frá aðstandendum hlaupsins.

Vildu ekki sitja eftir

Árið 2025 höfðu Höskuldur og Tyler ákveðið að hlaupa og þá vildu Anna Kristín og Jón, bróðir hennar, ekki sitja eftir. Höskuldur var þá 75 ára og lét aldurinn ekki stöðva sig. Hann hafði verið nálægt tímatakmörkum hlaupsins árin 2023 og 2024 en lauk að þessu sinni keppni um hálftíma fyrr en bæði árin á undan.

Í sumar var Anna Kristín hins vegar ein úr fjölskyldunni á ráslínunni. Tyler hafði gleymt að skrá sig og beindi sjónum sínum að öðrum utanvegahlaupum. Höskuldur hafði aftur á móti valið sér annað stórt verkefni, sex daga hlaup í Svíþjóð skömmu eftir Laugavegshlaupið.

Eftir þátttöku 20 ár í röð ákvað hann því að sleppa Laugaveginum þetta árið. Áhuginn á að snúa aftur lét þó fljótt á sér kræla.

„Það má segja að Höskuldur hafi verið orðinn ansi spenntur fyrir því að komast aftur á Laugaveginn enda mætti hann í dalinn til að taka á móti mér og var þá þegar búinn að ákveða að hann yrði með árið 2027! Tyler var líka ákveðinn í að vera með og gleymdi ekki að skrá sig,“ segir Anna Kristín og hlær.

Nú ætla þau því öll þrjú að vera með næsta sumar. Tyler hefur jafnframt sett sér ákveðið tímamarkmið og vill ljúka hlaupinu á innan við sex klukkustundum.

Reynsla Höskulds kemur sér vel

Höskuldur hefur átt stóran þátt í að vekja áhuga yngri kynslóða fjölskyldunnar á hlaupum og útivist. Börn hans og barnabörn hafa í gegnum árin fylgt honum í skokk, gönguferðir, fjallgöngur og götuhlaup.

„Við Tyler höfum ásamt öðrum í fjölskyldunni smitast af utanvegahlaupaveirunni þökk sé honum. Það er náttúrulega ótrúlegur lúxus fyrir okkur að hafa aðgang að manni með svona mikla reynslu. Hann hefur kennt okkur mikið í gegnum árin og gefið góð ráð. Ég held meira að segja að hann eigi allar bækur sem hafa verið skrifaðar um hlaup, utanvegahlaup og langhlaup.“

Undirbúningur fyrir næsta sumar er þegar hafinn. Höskuldur stefnir líklega á Laugavegsnámskeið hjá Náttúruhlaupum, þar sem hann hefur æft áður. Anna Kristín veltir fyrir sér að fara sömu leið en Tyler sér sjálfur um sínar æfingar.

Þau þurfa þó ekki að mæta saman á æfingar til að hvetja hvert annað áfram. Þau fylgjast með framvindunni, meðal annars á Strava, og hafa um nóg að ræða þegar kemur að undirbúningnum.

„Það er mikil hvatning í því að vita af öðrum sem eru að æfa fyrir sama markmið og nenna að tala um sama áhugamál. Þá er hægt að pæla í ólíkum geltegundum, íþróttadrykkjum, hlaupaskóm og öllu því sem fylgir langhlaupum.“

Þekking Höskulds á leiðinni og reynsla hans af æfingum, næringu og búnaði nýtast þeim Önnu Kristínu og Tyler vel. Ráð hans verða því áfram hluti af undirbúningi þeirra fyrir afmælishlaupið.

Hlaupa hvert á sínum hraða

Þótt fjölskyldan stefni saman á ráslínuna verður ekki um sameiginlega ferð alla leið að ræða. Þau hafa hvert sín markmið og ætla að haga hlaupinu eftir þeim.

Þau telja ekkert þeirra þurfa sérstaklega á meiri hvatningu að halda en hin. Stuðningurinn sé engu að síður dýrmætur og vonin sé að þau geti hist í markinu og samglaðst yfir árangrinum.

„Það er mögnuð tilfinning að standa á ráslínunni eftir allan undirbúninginn og enn betri tilfinning þegar maður kemur svo í mark. Að sjá ástvini sína líka ná sínum markmiðum er ótrúlega skemmtilegt og ómetanlegt að fá að upplifa og fagna saman.“

Laugavegshlaupið fer fram 17. júlí næstkomandi. Skráningu lýkur á miðnætti miðvikudaginn 18. nóvember og viku síðar, 25. nóvember, fá umsækjendur að vita hvort þeir hafi fengið sæti.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅