Stjóri Andra hjá Blackburn segir upp - Heilsubrestur ástæðan

Tony Mowbray hefur látið af störfum sem knattspyrnustjóri Blackburn Rovers vegna heilsufarsvandamála. Andri Lucas Guðjohnsen hefur blómstrað undir stjórn Mowbray.

Félagið staðfesti tíðindin í dag en Mowbray, sem er 62 ára, tók við Blackburn í annað sinn í júní síðastliðnum.

Mowbray greindist með krabbamein í þörmum árið 2024 og þurfti þá að taka sér hlé frá störfum hjá Birmingham City.

Hann gekkst einnig undir aðgerð á síðasta ári vegna krabbameinsæxlis í nára. Ekki hefur verið greint nánar frá núverandi heilsufarsvandamálum hans.

„Því miður verð ég að stíga til hliðar sem knattspyrnustjóri Blackburn vegna heilsufarsvandamála,“ sagði Mowbray í opnu bréfi til stuðningsmanna.

„Ég er gríðarlega stoltur af þessum leikmannahópi og hef notið þess að vinna með honum.“

Hann þakkaði jafnframt starfsfólki, eigendum og stuðningsmönnum félagsins fyrir samstarfið og óskaði eftir friðhelgi fyrir sig og fjölskylduna.

Mowbray stýrði áður Blackburn á árunum 2017 til 2022.

Damien Johnson og Mike Dodds munu tímabundið sjá um þjálfun aðalliðsins.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅