Hópslagsmál unglinga í Hveragerði draga dilk á eftir sér
Hrottaleg líkamsárás og hópslagsmál í íbúðarhúsi í Hveragerði haustið 2023 eru nú orðin að dómsmáli.
Tvítugur maður, sem var 17 ára þegar atvikin áttu sér stað, hefur verið ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás á hendur jafnaldra sínum. Í ákæru héraðssaksóknara er hann sagður hafa slegið brotaþola fyrirvaralaust í höfuðið, sem leiddi til þess að átök brutust út með aðkomu fleiri manna, sem enduðu með því að brotaþoli féll í gólfið en ákærði sparkaði og/eða stappaði á höfði hans þar sem hann lá í gólfinu.
Brotaþoli rotaðist, hlaut brot í andlitsbeini nálægt gagnauga, blæðingu undir húð, opið sár í andliti, yfirborðsáverka á hálsi, gleikkun milli beina höfuðkúpu, blæðingu undir slímhúð auga og tognun á hálsi.
Fyrir hönd brotaþola er krafist rúmlega 1,5 milljóna króna í miskabætur.
Málið var þingfest við Héraðsdóm Reykjavík í dag, 17. nóvember.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗