Kæmi ekki á óvart ef „fleiri myndu gefast upp“

Jón Gnarr telur enn allt ólestri í Viðreisn.

Jón Gnarr telur enn allt ólestri í Viðreisn. mbl.is/Karítas

Það kæmi Jóni Gnarr, þingmanni utan þingflokka, ekki á óvart ef fleiri þingmenn yfirgæfu Viðreisn í kjölfar Ingvars Þóroddssonar, enda séu þau vandamál sem hann sjálfur gagnrýndi enn óleyst.

„Mér finnst kannski rót vandans liggja hjá forystunni, já og formanninum,“ segir Jón í samtali við mbl.is.

Hann segir brotthvarf Ingvars ekki hafa komið sér á óvart.

„Ég vissi af þessu og var búinn að vita þetta lengi.“

Þrátt fyrir að þeir hafi rætt saman um óánægju sína innan þingflokksins segir Jón þá ekki endilega hafa haft sömu sýn á vandann.

„Hans úrsögn er kannski málefnalegri eða hugmyndafræðilegri heldur en mín. Hann er ósáttur við stefnu stjórnvalda eða ósáttari við stefnu stjórnvalda heldur en ég. Á meðan ég hef aðallega verið að setja fyrir mig stjórnunarvanda og starfsanda,“ segir Jón en sjálfur yfirgaf hann þingflokk Viðreisnar fyrir rúmum mánuði. Hann er þó enn í flokknum og gerði samstarfssamning við Viðreisn.

Ímyndar sér að stemningin sé súr

Jón telur lítið hafa breyst frá því að hann yfirgaf þingflokkinn.

„Það sem ég kannski kvartaði mikið yfir þegar ég tók mína ákvörðun, ég held að það sé ennþá meira og minna allt í ólestri. Það kæmi mér ekkert á óvart að fleiri myndu gefast upp á því. Þá er ég að tala um stefnuleysi, forystuleysi og ákvarðanafælni.“

Hann tekur þó fram að hann hafi ekki rætt við aðra þingmenn um mögulega úrsögn þeirra og sé nú í litlum samskiptum við þingflokkinn. Hann geti því ekki sagt til um almenna óánægju innan flokksins nú. „Ég get bara ímyndað mér að það sé súr stemning.“

Aðspurður hvort lausnin gæti falist í því að skipta um forystu segir Jón það ekki sitt að taka slíka ákvörðun. Hann telji þó að taka hefði átt á vandanum meðan hann var enn innan þingflokksins.

„Nú er ég ekki þarna lengur, þannig að mig varðar alltaf minna og minna um þetta, bara eins og innanbúðarvanda hjá Framsóknarflokknum.“

Ekki heillavænlegt að stökkva í faðm fálkans

Aðspurður lítur Jón ekki svo á að Ingvar hafi svikið kjósendur sína með því að ganga til liðs við Sjálfstæðisflokkinn.

„Hans ábyrgð, samkvæmt stjórnarskrá Íslands, liggur fyrst og fremst hjá hans samvisku,“ segir Jón. „Hann er ekki að svíkja neinn og er bara að standa með sinni eigin sannfæringu. Það kann að virðast oft óskiljanlegt að fólk skuli vilja gera það ef það gæti svo auðveldlega bara þrammað í takt. “

Jón telur að Ingvar hafi ekki átt annarra kosta völ og grípur til myndlíkingar:

„Sjáum bara samband þar sem þrjár manneskjur ætla að reyna að búa saman og það lítur kannski mjög vel út í upphafi og það eru spennandi hveitibrauðsdagar. En svo fer kannski að súrna svolítið í sambúðinni og það er bara þannig. Mér finnst Ingvar svolítið svona dæmi um það að hann hafi kannski áttað sig á því að hann hafi gengið inn í einhverja sambúð sem hann gerði sér aðrar væntingar um.“

Svo hafi málið þróast með þeim hætti sem það gerði.

„Að stökkva í ískaldan útbreiddan faðm fálkans er kannski ekki heillavænlegt til framtíðar, en ég veit það ekki og vona að það sé rangt og að Ingvar eigi bjarta framtíð í Sjálfstæðisflokknum. Og þetta er líka tækifæri fyrir þau til að sýna það svart á hvítu að það þurfi enginn að sjá eftir því að stökkva í fangið á þeim.“

Þrátt fyrir gagnrýnina á Viðreisn segist Jón bera hlýhug til fyrrverandi samstarfsfólks síns og óska því alls hins besta.

„Mér þykir bara vænt um allt þetta fólk og vil því allt gott og vona að allir nái að laga sín mál,“ segir Jón og tekur fram að hann fagni ekki vandræðum flokksins.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅