Aldargömul friðarsamtök verðlaunuð í Hörpu

Hanna Birna Kristjánsdóttir ásamt fulltrúum verðlaunahafa og öðrum þátttakendum við afhendingu Power, Together-verðlaunanna á Heimsþingi kvenleiðtoga í Hörpu. Ljósmynd/María Kjartansdóttir

Þrenn alþjóðleg samtök og verkefni sem vinna að jafnrétti, friði og auknum áhrifum ungra stúlkna hlutu Power, Together-verðlaunin á Heimsþingi kvenleiðtoga í Hörpu.

Verðlaunin voru veitt GQUAL Campaign, Alþjóðasamtökum kvenna fyrir friði og frelsi (WILPF) og verkefninu Adolescent Girls Summit. Hanna Birna Kristjánsdóttir, stjórnarformaður og einn stofnenda Reykjavík Global Forum, afhenti verðlaunin.

Verðlaunin eru veitt fyrir starf á sviði réttinda og réttlætis, kvenna, friðar og öryggis og leiðtogahlutverks ungs fólks. Þeim er ætlað að vekja athygli á því hvernig samstarf og samstaða geta stuðlað að samfélagsbreytingum.

Yfir 110 ára friðarbarátta

WILPF eru elstu starfandi friðarsamtök kvenna í heiminum. Þau voru stofnuð árið 1915 þegar konur komu saman í Haag til að krefjast þess að fyrri heimsstyrjöldinni lyki.

Samtökin starfa nú í yfir 40 löndum og hafa í meira en 110 ár beitt sér fyrir friði, afvopnun og jafnrétti kynjanna.

GQUAL Campaign hlaut verðlaun fyrir baráttu sína fyrir jafnri þátttöku kvenna og karla í alþjóðlegum dómstólum og mannréttindastofnunum. Frá árinu 2015 hafa samtökin meðal annars beitt sér fyrir auknu gagnsæi við tilnefningar og kosningar í alþjóðlegar stofnanir.

Adolescent Girls Summit hlaut verðlaun fyrir að efla leiðtogahæfni og áhrif stúlkna á aldrinum 10 til 19 ára í Afríku. Verkefnið er á vegum Global Fund for Children og hefur þróast frá svæðisbundnu verkefni í Vestur-Afríku yfir í víðtækara samstarf ungs fólks um alla álfuna.

Hanna Birna Kristjánsdóttir, stjórnarformaður Reykjavík Global Forum, afhenti Power, Together-verðlaunin á Heimsþingi kvenleiðtoga í Hörpu. Ljósmynd/María Kristjánsdóttir

Vill beina sjónum að samstöðu

Hanna Birna segir mikilvægt að beina sjónum að þeim sem sýni með verkum sínum hverju samstarf geti áorkað, ekki síst á tímum þegar vegið sé að þeim árangri sem náðst hafi í jafnréttismálum.

„Starf þeirra endurspeglar kjarna Heimsþings kvenleiðtoga og yfirskrift þess í ár, Power, Together for Community,“ segir Hanna Birna í fréttatilkynningu.

Heimsþing kvenleiðtoga fer fram í Hörpu dagana 15.–17. nóvember en dagskráin stendur fram á kvöld. Hægt er að fylgjast með útsendingu frá þinginu á mbl.is.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅