Kennir áhuga Arsenal um
Vinícius Júnior, knattspyrnumaður Real Madrid, segir að áhugi Arsenal á honum í sumarfélagaskiptaglugganum hafi „ruglað sig í ríminu“ og átt þátt í erfiðri byrjun hans á tímabilinu.
Hann hefur aðeins skorað eitt mark í efstu deild Spánar á leiktíðinni.
Brasilíski sóknarmaðurinn íhugaði að ganga til liðs við ensku meistarana áður en hann skrifaði undir nýjan samning við Madrid til ársins 2032, samkvæmt The Athletic.
„Mörg félög sýndu áhuga á að fá mig síðasta sumar, það ruglaði mig í ríminu,“ sagði hann á blaðamannafundi með brasilíska landsliðinu á mánudag.
Vinícius viðurkenndi einnig að hafa æft minna í sumarfríinu eftir að Brasilía féll úr leik í 16-liða úrslitum HM. Hann skoraði tvö mörk í 3:2-tapi gegn Japan í vináttuleik á laugardag.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗