Grunur um nauðungarbrúðkaup á Íslandi – Myndir af barnungri stúlku í brúðarkjól
Landsréttur felldi úr gildi farbann yfir manni sem grunaður var um að gefa 15 ára dóttur sína í barnahjónaband. Úrskurðurinn var birtur í dag en féll þann 30. janúar 2025. Ekki liggur fyrir ástæða þess að birting á úrskurðinum dróst svona lengi en geta má sér til að málið þyki viðkvæmt.
Landsréttur taldi lögreglu ekki hafa sýnt fram á með fullnægjandi hætti að rökstuddur grunur væri um refsivert brot og því væru ekki lagaskilyrði fyrir farbanninu.
Málsvatvik eru þau að 5. nóvember 2024 höfðu tollverðir á Keflavíkurflugvelli afskipti af manni sem var á ferð með 15 ára stúlku. Ferðasaga þeirra vakti athygli tollvarða og var lögregla kölluð til. Maðurinn framvísaði skjali sem hann sagði vera frá yfirvöldum í heimalandi þeirra og sýna að foreldrar stúlkunnar hefðu heimilað henni að ferðast með honum.
Maðurinn gat ekki gefið fullnægjandi skýringar á ferðalaginu og var handtekinn. Stúlkan var yfirheyrð í viðurvist fulltrúa barnaverndar og síðan færð í umsjá barnaverndaryfirvalda.
Þegar lögregla var að fylgja henni úr flugstöðinni komu tveir menn á vettvang. Annar þeirra sagðist vera faðir stúlkunnar en gat ekki útskýrt tengsl sín við hana nánar þegar lögregla spurði. Kom í ljós að hann var í raun faðir brúðgumans en ekki stúlkunnar. Hinn maðurinn var föðurbróðir stúlkunnar. Mennirnir voru báðir handteknir vegna rannsóknarinnar.
Fleiri voru handteknir í tengslum við málið og voru meðal annars teknar skýrslur af föður stúlkunnar og móður hennar. Við yfirheyrslur viðurkenndi faðirinn að samkomulag hefði verið gert milli fjölskyldnanna um samband dóttur hans og mannsins sem hafði ferðast með henni. Hann sagði foreldra mannsins hafa komið til sín til að ræða ráðahaginn og að þau hefðu greitt flugfargjöld þeirra til Íslands.
Blóðblettur innsiglaði sambandið
Stúlkan greindi lögreglu frá því að foreldrar hennar hefðu gefið hana manninum í brúðkaupi samkvæmt hefðum þeirra. Athöfnin hefði farið fram í húsnæði sem tengdist föður mannsins sem hún átti að giftast.
Stúlkan lýsti því að hún hefði klæðst hvítum brúðarkjól og farið með manninum á efri hæð hússins. Þar hefði hann haft við hana kynmök á meðan aðstandendur biðu á neðri hæðinni. Að því loknu hefðu þau komið niður og verið sýndur rauður blettur sem átti að staðfesta að kynmök hefðu átt sér stað og að sambandið væri innsiglað.
Lögregluna grunaði mansal
Lögregla rannsakaði málið sem meint mansal og möguleg önnur brot. Meðal gagna voru upplýsingar frá erlendum yfirvöldum um að barnabrúðkaup samkvæmt hefðum viðkomandi hóps væru ólögleg í heimalandinu. Frumrannsókn á farsímum sem hald var lagt á leiddi jafnframt í ljós samskipti milli föðurins og dóttur hans. Í símunum fundust einnig myndir af stúlkunni í hvítum brúðarkjól með öðrum aðilum málsins.
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum taldi föðurinn og aðra aðstandendur stúlkunnar undir rökstuddum grun um mansal og að hafa komið henni í nauðungarhjónaband þar sem hún hefði verið beitt kynferðislegu ofbeldi. Faðirinn var grunaður um að hafa útvegað, flutt og afhent dóttur sína í þessum tilgangi.
Lögreglan taldi mikilvægt að tryggja að maðurinn yrði áfram hér á landi meðan rannsókn málsins stæði yfir. Hann væri erlendur ríkisborgari með takmörkuð tengsl við Ísland og hætta væri á að hann reyndi að fara úr landi og komast þannig undan málsókn. Lögreglustjórinn fór því fram á að hann yrði úrskurðaður í farbann til 21. mars 2025.
Landsréttur taldi grun um brot ekki nægilega sterkan
Héraðsdómur Reykjaness féllst á farbannskröfuna. Taldi dómurinn að fyrir lægju næg gögn til að maðurinn teldist undir rökstuddum grun um brot sem varðað gæti allt að 12 ára fangelsi. Þá væru takmörkuð tengsl hans við Ísland og eðli málsins til þess fallin að skapa hættu á að hann reyndi að komast úr landi.
Maðurinn kærði úrskurðinn til Landsréttar og krafðist þess að farbannið yrði fellt úr gildi.
Landsréttur komst að annarri niðurstöðu en héraðsdómur. Í úrskurðinum var bent á að lögregla hefði ekki sýnt fram á með fullnægjandi hætti að rökstuddur grunur beindist að manninum um brot gegn því ákvæði almennra hegningarlaga sem vísað var sérstaklega til í kröfunni. Þá yrði ekki ráðið af gögnum málsins að nægileg stoð væri fyrir slíkum grun.
Landsréttur gagnrýndi jafnframt að lögregla hefði ekki útskýrt með hvaða hætti hin ætlaða háttsemi gæti fallið undir önnur refsiákvæði. Þau ákvæði hefðu ekki verið tilgreind sérstaklega í kröfu lögreglu eða greinargerð hennar.
Þar sem ekki hefðu verið sýnd fram á efnisleg skilyrði fyrir farbanni felldi Landsréttur úrskurð héraðsdóms úr gildi.
Úrskurðina má lesa hér.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗