„Hún var bara titrandi“
„Það var ömurlega óhuggulegt að horfa á þetta, þarna er varnarlaus villtur fugl bara skotinn með háum hvelli, það var ekki einu sinni hljóðdeyfir á byssunni,“ segir Ingiveig Gunnarsdóttir, formaður dýraverndunarsamtakanna Dýravaktarinnar, í samtali við mbl.is um atvik við tjörn á Víðistaðatúni í Hafnarfirði í fyrradag þegar meindýraeyðir skaut álft sem hafðist þar við.
Einn sjálfboðaliða Dýravaktarinnar varð vitni að atvikinu og tók upp það myndskeið sem hér fylgir. „Hún var bara titrandi, hún fékk áfall, var búin að vera að fylgjast með þessari álft talsvert lengi. Hún hringdi í mig alveg miður sín,“ heldur Ingiveig áfram og segir það óhugnanlegt að dýrið hafi verið skotið fyrir framan skólabörn sem voru á gangi fram hjá vettvangi þegar atvikið átti sér stað upp úr klukkan 16 í gær.
Hafi heimild til að aflífa dýr sem þjást
Kveðst Ingiveig hafa hringt í lögreglu tafarlaust, en þar verið vísað á Hafnarfjarðarbæ.
„Lögreglan sagði mér að meindýraeyðar hefðu leyfi til að aflífa villta fugla ef þeir væru að þjást. Um þetta eru auðvitað skýr lög og við viljum vita hvaða lagaheimild er þarna að baki,“ segir Ingiveig og bætir því við að ótrúlegt sé að svona lagað skuli gerast með þessum hætti um hábjartan dag og innan um börn. „Þarna var blóðpollur eftir,“ segir hún frá.
Skólapiltar á gangi um túnið
Ingiveig segir skólapilta hafa verið á gangi um Víðistaðatún á þeim tíma sem atvikið átti sér stað. „Einn þeirra virtist vera um þrettán ára gamall. Þrír aðrir virtust á svipuðum aldri voru að ganga í áttina að tjörninni. Það sést ógreinilega á myndskeiðinu að annar tveggja starfsmanna á merktum fyrirtækisbíl [meindýraeyða] var með riffil í hendi en gæti hafa verið haglabyssa. Skothvellurinn var það hár að okkur finnst líklegra að um riffil hafi verið að ræða,“ tekur hún fram.
Hefur Ingiveig nú sent Hafnarfjarðarbæ erindi vegna málsins þar sem hún óskar svara við sex spurningum, þar á meðal hver hafi óskað eftir aflífun álftarinnar, hvaða athuganir eða faglega mat hafi legið því til grundvallar að dýrið hafi verið talið þjást, hvaða lagaheimildir búi að baki, hvaða öryggisráðstafanir hafi verið gerðar vegna notkunar skotvopns á Víðistaðatúni og hvort grunur hafi leikið á fuglaflensu eða öðrum sjúkdómi.
„Ég vil jafnframt fá svar frá Matvælastofnun varðandi heimildir meindýraeyða til að athafna sig með þessum hætti þegar ekkert liggur fyrir um að dýrið sé veikt eða eða þjáist,“ heldur Ingiveig áfram.
Fólk haldi gjarnan að álftir séu frosnar fastar
Hún segir tjörnina á Víðistaðatúni ísilagða um þessar mundir, en á ísnum sé lítil vök þar sem þessi tiltekna álft hafi haldið sig ásamt fleiri fuglum. „Fólk heldur oft að álftir séu fastar af því að þær liggja oft á bringunni og maganum, en þær verma fæturna með þessu og þá hitnar þeim og þegar er svona kalt í veðri liggja fuglarnir oft svona,“ segir hún.
Álftin, sem hér er til umræðu, hafi flogið töluvert á milli Hamars, Hamarskotslæks og Víðistaðatúns. „Álftir eru náttúrulega gríðarlega varnarlausar, þær eru mjög þunglamalegar, þær eru þungar og hægar í hreyfingum. Álftin var þarna á tjörn, pínulítilli tjörn, og það er ekki vatn í tjörninni, hún gat ekki synt burtu.
Hún nær kannski ekki svo auðveldlega að fljúga af því að álftir þurfa að taka á loft, þær þurfa mikið pláss. Hún var fleyg og virtist alveg heilbrigð og var að taka við mat sem fólk gaf henni. Það gera heilbrigðir fuglar, ef þeir taka ekki fóður og hætta að borða eru það merki um veikindi,“ segir Ingiveig Gunnarsdóttir formaður Dýravaktarinnar að lokum og krefst svara frá Hafnarfjarðarbæ um rætur og ástæður atviksins á Víðistaðatúni í gær.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗