Leggja til að United losi sig við Bruno og fái þennan mann í hans stað

Mauricio Pochettino, nýráðinn knattspyrnustjóri Manchester United, er hvattur til að gera róttækar breytingar á leikmannahópi félagsins.

Í grein í The Sun er því haldið fram að United eigi að selja fyrirliðann Bruno Fernandes og leggja allt kapp á að fá Cole Palmer frá Chelsea.

Palmer, sem er 24 ára, er fæddur í Manchester og ólst upp sem stuðningsmaður United. Hann lék áður með Manchester City en hefur blómstrað hjá Chelsea.

Getty Images

Pochettino þekkir Palmer vel enda stýrði hann Chelsea þegar Englendingurinn festi sig í sessi í byrjunarliðinu.

Talið er að United þyrfti að greiða yfir 130 milljónir punda fyrir Palmer, sem yrði breskt félagaskiptamet.

Fernandes, sem er 32 ára, hefur verið lykilmaður United undanfarin ár en framtíð hans er í óvissu vegna samningsmála.

Greinarhöfundur telur að brottför Portúgalans gæti auðveldað Pochettino að byggja upp nýtt lið á Old Trafford.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅