Myndskeið: Brúargrindin dregin yfir Ölfusá
Innlent | mbl | 17.11.2026 | 12:55
Mjög vel gekk að draga 330 metra langa og 2.000 tonna þunga brúargrind af austari bakka Ölfusár yfir á vestari bakkann í lok síðasta mánaðar.
„Við færsluna voru notaðir öflugir vökvadrifnir tjakkar sem drógu brúargólfið áfram eftir sérstökum dráttarlegum. Brúargrindin hvíldi á púðum og rann þannig eftir sléttum stálplötum til að koma í veg fyrir skemmdir á yfirborði stálbitanna,“ segir á vef Vegagerðarinnar.
Tjakkarnir drógu brúargólfið áfram um hálfan metra í einu. Áætlað er að hægt verði að færa það um tíu metra á klukkustund við bestu aðstæður en öll aðgerðin tók mun styttri tíma en áætlað var.
Til að styðja við brúargólfið á meðan það var dregið yfir ána var komið fyrir stóru bráðabirgðamastri ofan á því. Þaðan lágu stálkaplar sem héldu uppi fremri enda brúargólfsins meðan á færslunni stóð.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗