Margrét seldi húsið með innbúi á 610 milljónir
Læknirinn og innanhússhönnuðurinn, Margrét Ásgeirsdóttir, hefur selt glæsihús sitt við Skeljatanga í Reykjavík. Smartland fjallaði ítarlega um húsið á sínum tíma en það hefur að geyma marga kosti sem fólk með rífleg fjárráð gæti auðveldlega látið sig dreyma um. Í húsinu er allur sá lúxus sem hægt er að hugsa sér eins og líkamsræktaraðstaða, heitur pottur, sauna og vínkjallari. Vb.is greinir frá því að húsið sé selt.
Kaupandi er Ana Paula Oliveira og vildi hún fá ýmsa innanstokksmuni með í kaupunum eins og öll ljós í húsinu, gardínur, eldhústæki, gerviplöntur, stóla og sófa á millilofti og gólfmottu. Einnig fylgdi með kremlitaður sófi, glersófaborð í skrúfulögun, flygill og píanóstóll og gólfmotta. Borðstofuborð og stólar fylgdu líka með ásamt stólar og sófaborð við eldhúsglugga, barstólar í eldhúsi og hangandi glerskraut úr lofti. Líka spilakassi, grænblátt útisófasett, sófi og sófaborð á gangi í kjallara og stórt málverk í stofu í kjallara hússins.
Í fasteignafrétt á Smartlandi sem birtist 5. febrúar 2026 er hægt að sjá húsgögnin sem um ræðir:
Smartland óskar Margréti til hamingju með söluna á húsinu!
内容来自 Mbl.is - Smartland - Heimili og hönnun,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗