Nauðgaði þremur börnum og dæmdur til geldingar – „Verðskuldar þetta og meira til“
Fyrrverandi lögreglumaður í Louisiana í Bandaríkjunum hefur verið dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir að nauðga þremur börnum á aldrinum átta til ellefu ára. Þar með er þó ekki öll sagan sögð, því maðurinn var einnig dæmdur til geldingar með lyfjameðferð.
Málið hefur vakið mikla athygli vestanhafs, ekki síst vegna hinnar óvenjulegu refsingar.
Breska dagblaðið Daily Mail fjallar ítarlega um málið og umdeilda löggjöf Louisiana, sem heimilar dómurum að dæma kynferðisbrotamenn til geldingar með skurðaðgerð.
Komust að niðurstöðu á 39 mínútum
Maðurinn, Kedreyon Williams, er 31 árs og starfaði áður sem lögreglumaður í bænum New Roads auk þess að vera sjálfboðaliði í slökkviliðinu. Sum brotanna voru framin á slökkvistöðvum þar sem hann starfaði, en önnur á vinnustað hans og heimili.
Kviðdómur var aðeins 39 mínútur að komast að niðurstöðu eftir fjögurra daga réttarhöld í október. Williams var sakfelldur fyrir þrjár nauðganir á börnum, ósæmilega kynferðislega hegðun gagnvart barni og vörslu barnaníðsefnis. Meðal sönnunargagna var myndskeið í farsíma hans sem sýndi kynferðisbrot gegn barni.
Williams hlaut þrjá ævilanga fangelsisdóma, án möguleika á reynslulausn.
Kevin Kimball, dómarinn í málinu, lýsti því yfir við dómsuppkvaðninguna að þetta væri versta mál sem varðaði kynferðisofbeldi gegn börnum sem hann hefði nokkru sinni komið að.
Saksóknarinn vildi ganga lengra
Tony Clayton, saksóknari málsins, taldi ævilangt fangelsi ekki nægilega refsingu fyrir brotin og krafðist þess að Williams yrði einnig geldur.
„Hann framdi viðbjóðslega verknaði gegn börnum sem gátu ekki varið sig. Hann er barnaníðingur og verðskuldar nákvæmlega það sem hann fær og meira til,“ sagði Clayton.
Saksóknarinn bætti við að geldingin væri enn eitt refsiúrræðið vegna hinna alvarlegu brota.
„Ef karlmaður misnotar barn kynferðislega munum við svipta hann karlmennskunni,“ sagði hann.
Clayton vildi upphaflega að Williams yrði geldur með skurðaðgerð þar sem eistu hans yrðu fjarlægð. Sú verður þó ekki raunin, heldur var ákveðið að hann skyldi sæta geldingu með lyfjameðferð sem dregur úr framleiðslu kynhormóna og kynhvöt.
Óvissa um tímasetningu
Louisiana varð árið 2024 fyrsta ríki Bandaríkjanna til að heimila dómurum að dæma einstaklinga til geldingar með skurðaðgerð vegna tiltekinna alvarlegra kynferðisbrota gegn börnum yngri en 13 ára.
Áður hafði verið heimilt að beita geldingu með lyfjameðferð í Louisiana, líkt og í nokkrum öðrum ríkjum Bandaríkjanna.
Samkvæmt Daily Mail hefur enginn enn verið geldur með skurðaðgerð á grundvelli nýju laganna. Framkvæmd þeirra er háð læknisfræðilegum og lagalegum skilyrðum.
Óvissa ríkir einnig um hvenær gelding Williams verður framkvæmd. Saksóknaraembættið hefur staðfest að um lyfjameðferð verði að ræða en ekki skurðaðgerð. Ekki hefur hins vegar verið skýrt opinberlega hvenær meðferðin á að hefjast.
Athygli vekur að samkvæmt lögum Louisiana um geldingu með skurðaðgerð á slík aðgerð að fara fram eigi síðar en viku áður en fangi er látinn laus. Williams hefur hins vegar verið dæmdur til ævilangrar fangelsisvistar án möguleika á reynslulausn. Það ákvæði á þó ekki sjálfkrafa við um lyfjameðferðina sem honum verður gert að sæta.
Gelding sem refsing fyrir kynferðisbrot hefur verið umdeild. Gagnrýnendur hafa meðal annars bent á að slík aðgerð komi ekki endilega í veg fyrir frekari brot, enda eigi kynferðisofbeldi sér oft flóknari rætur en kynhvöt eina saman. Valdbeiting og löngun til að stjórna öðrum geti einnig verið veigamiklir þættir.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗