Orðið á götunni: Kjósendur Viðreisnar kusu Ingvar ekki til að ganga í Sjálfstæðisflokkinn – svik við kjósendur eftir tíðindalaus tvö ár á þingi

Brottför Ingvars Þóroddssonar, þingmanns Norðaustur kjördæmis, úr Viðreisn yfir í Sjálfstæðisflokkinn. eru nánast fyrstu tíðindin af honum á Alþingi fyrir utan að hann greindi frá því í mars 2025 að hann væri kominn í sjúkraleyfi frá Alþingi til að fara í áfengismeðferð á Vogi. Hann kom svo til þings að nýju tveimur mánuðum síðar og lét lítið fyrir sér fara í þinginu. Hans er ekki minnst fyrir að hafa látið til sín taka að ráði í umræðum og hann hefur ekki beitt sér fyrir framgöngu mála. Satt best að segja er hann í hópi allmargra nýrra þingmanna sem fólk áttar sig almennt ekki á að hafi tekið sæti á Alþingi.

Orðið á götunni er að það sé vægast sagt hjákátlegt að Ingvar stigi nú fram og gagnrýni ríkisstjórnina fyrir ýmsar ákvarðanir sem hann hefur sjálfur samþykkt án athugasemda á þingi. Hann leyfir sér að nota orðið svik við kjósendur um álagningu tiltekinna gjalda sem renna sem tekjur í ríkissjóð og eru til þess fallnar að freista þess að láta af þeirri óreiðu í ríkisfjármálum sem fyrri ríkisstjórnir létu viðgangast með skelfilegum afleiðingum. Svikin sem hér um ræðir eru svik Ingvars við allt það fólk í Viðreisn sem kaus hann í kjördæminu fyrir tveimur árum til að vinna innan Viðreisnar en ekki Sjálfstæðisflokksins.

Í þeim kosningum var fyrri ríkisstjórn gjörsamlega hafnað og völdin tekin af henni þegar Vinstri græn voru þurrkuð út af þingi, Framsókn tapaði átta af 13 þingmönnum sínum og Sjálfstæðisflokkurinn fékk útreið, minnsta fylgi í sögunni, einungis 19 prósent. Flokkur sem gjarnan  mældist með 35 til 40 prósenta stuðning í þingkosningum. Við völdum tók ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur sem kynnti stefnu sína sem allir þingmenn stjórnarflokkanna samþykktu. Þar á meðal Ingvar Þóroddsson.

Ingvar er 28 ára að aldri og ljóst að hann er viðkvæm sál sem þolir ekki gagnrýni eða mótbyr sem jafnan fylgir þingstörfum þar sem tekist er á um stefnur og strauma. Andstæðingar hans fyrir norðan virðast hafa séð þetta og hamast á honum þar til hann brotnaði undan farginu og hljópst á brott. Ýmis tekjuöflun og kostnaðarspörun ríkissjóðs hefur verið umdeild eins og við má búast þegar verið er að koma fjárlögum í það horf að ríkið sé ekki rekið á yfirdrætti eins og tíðkast hefur í tíð fjármálaráðherra Sjálfstæðisflokksins. Þingmenn sem standa að þannig brýnni tiltekt í ríkisfjármálum verða að hafa burði til að standa með ákvörðunum meirihlutans í stað þess að lyppast niður við gagnrýni og skipulegan áróður eins og tíðkast hefur. Þá kemur á daginn hverjir eru menn og hverir eru mýs.

Ef taka ætti gagnrýni Ingvars alvarlega og láta af þeim gjaldahækkunum og aðgerðum til sparnaðar hjá ríkinu sem kynntar hafa verið væri verið að samþykkja áframhaldandi fjárlagahalla og viðvarandi óreiðu í ríkisfjármálum. Þannig ætlar ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur ekki að vinna. Úr því að Ingvar hefur ekki burði til að taka þátt í því þá er alveg eins gott að hann víki. Heiðarlegt hefði verið af honum að segja þá af sér þingmennsku og hleypa fyrsta varamanni Viðreisnar að í sinn stað en hlaupa ekki yfir í stjórnarandstöðuna á grundvelli stuðnings sem hann naut sem frambjóðandi Viðreisnar í kjördæminu. Enginn kaus hann þá til að ganga til liðs við Sjálfstæðisflokkinn. En Ingvar gefur ekkert fyrir ákvarðanir fólksins en fer með stuðning kjósenda Viðreisnar eins og herfang sitt. Það er óheiðarlegt en Ingvar Þóroddsson virðist ekki hafa mikla sómakennd.

Orðið á götunni er að sagan kenni að liðhlaupar á borð við Ingvar eigi aldrei neina von í þeim flokki sem þeir flýja til. Þeir kveða jafnan yfir sér pólitískan dauðadóm og væntanlega bíða Ingvars svipuð örlög. Alþingi mun samt standa það af sér að ferill hans verði stuttur og endasleppur! Ingvar er viðkvæmt blóm. Vonandi mun Sjálfstæðisflokkurinn koma fram við hann af skilningi og mannúð, þurfi hann frekari stuðnings við, þó það einkenni flokkinn ekki mikið um þessar mundir.

Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, réði sér vart fyrir kæti vegna þessa í gær. Fátt hefur glatt hana það sem af er kjörtímabili en nú telur hún að staða hennar hafi styrkst innan Sjálfstæðisflokksins en landsfundur bíður handan við hornið á næsta ári. Þá verður erfiðara að sækja að henni en vitað er að staðið hefur yfir undirbúningur af hálfu andstæðinga hennar innan flokksins að bjóða fram gegn henni og fella hana í formannskjöri.

Orðið á götunni er að það verði nú torsóttara. Andstæðingar Sjálfstæðisflokksins vona innilega að Guðrún Hafsteinsdóttir verði endurkjörin formaður flokksins á komandi ári.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅