Búast má við töfum á Kringlumýrarbraut
Búast má við umferðartöfum á Kringlumýrarbraut til suðurs við gatnamót Laugavegar á morgun vegna malbiksviðgerða. Þrengt verður í eina akrein og beygjurein af Laugavegi inn á Kringlumýrarbraut lokað.
Áætlað er að viðgerðirnar standi yfir frá klukkan 11 til 13 á morgun, miðvikudaginn 18. nóvember, ef veður leyfir. Einnig verður þrengt að umferð á beygjurein á Suðurlandsbraut.
Vegagerðin hefur veitt heimild fyrir framkvæmdunum.
Vegfarendur eru hvattir til að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðið. Í tilkynningu vegna framkvæmdanna er bent á að vinnusvæðið sé þröngt og að starfsfólk og tæki verði við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗