RÚV sækir sér auka 40 milljónir
Framleiðslukostnaður við sjónvarpsþættina Góðir Íslendingar, sem voru á dagskrá Ríkissjónvarpsins á vordögum, var ekki allur greiddur af stofnuninni. RÚV fékk framleiðslufyrirtækið Atlavík með sér í lið við gerð þáttanna og því var hægt að sækja endurgreiðslu á 25% kostnaði framleiðslunnar til íslenska ríkisins.
Þriggja manna nefnd um endurgreiðslur hefur samþykkt umsókn Atlavíkur um endurgreiðslu upp á rétt rúmar 40 milljónir króna. Hún hefur þó ekki verið greidd út því endurgreiðslusjóðurinn tæmdist í sumar eins og Morgunblaðið hefur greint frá.
Lögum samkvæmt eiga framleiðendur kvikmynda eða sjónvarpsefnis á Íslandi kost á endurgreiðslum á allt að 25% af framleiðslukostnaði sem fellur til hér á landi og 35% ef skilyrði um afar stór verkefni eru uppfyllt. RÚV má ekki sækja um endurgreiðslur.
Fáðu aðgang að þessari grein
Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.
Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.
Tryggðu þér aðgang núna.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗