Sá yngsti í 95 ár

Blades Brown.

Blades Brown. AFP/Sam Hodde

Bandaríski kylfingurinn Blades Brown varð yngsti sigurvegari á PGA-mótaröðinni í 95 ár þegar hann bar sigur úr býtum á World Wide Technology Championship.

Hinn 19 ára gamli Brown vann upp sjö högga forskot með lokahring upp á 63 högg, níu höggum undir pari, áður en hann lagði Ben James á annarri holu í bráðabana. Báðir luku keppni á 23 höggum undir pari.

„Ég held að það sé ekki alveg búið að síast inn hversu stórt það er að vera sigurvegari á PGA-mótaröðinni,“ sagði Brown á blaðamannafundi.

Brown er fyrsti táningurinn til að vinna mót á mótaröðinni síðan Jordan Spieth gerði það árið 2013.

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅