Bjarndís hefur oft fengið að heyra: „Þú missir bæturnar!“
Fókus
Þriðjudaginn 17. nóvember 2026 12:11
Bjarndís Helena Mitchell. Mynd/Pexels
Bjarndís Helena Mitchell er fyrrverandi ritari, frumkvöðull, móðir og öryrki. Hún segir öryrkja standa frammi fyrir erfiðum vanda. „Ef öryrkinn gerir ekkert er hann byrði. Ef hann reynir eitthvað er hann kærulaus. Ef það tekst er hann grunsamlegur,“ segir hún í pistli á Vísi.
Bjarndís segir öryrkja oft fá að heyra: „Þú missir bæturnar!“ þegar þeir ætla að fara að vinna eða stofna fyrirtæki.
„Það mætti halda að örorkulífeyrir væri töfragripur úr íslenskri þjóðsögu. Um leið og maður sýnir sjálfstæðan vilja hverfur hann ofan í jörðina og sést aldrei framar.“
Fékk bætur aftur
Bjarndís lenti í bílslysi þegar hún var tvítug. „Síðan hafa fleiri heilsufarsvandamál bæst í hópinn, eins og óboðnir gestir sem frétta af veislu. Ég hef verið á örorkulífeyri um árabil,“ segir hún.
„En ég hef líka unnið. Ég hef unnið á skrifstofu, í hótelmóttöku og ók leigubíl, og á þeim tíma var ég ekki á örorkulífeyri. Svo kom kórónuveirufaraldurinn og starfið hvarf.
Og veistu hvað? Bæturnar höfðu ekki horfið ofan í jörðina. Ég fékk þær aftur. Þær biðu eftir mér, svona eins og köttur sem þykist ekki hafa saknað manns. Það þurfti bara vottorð til.“
Bjarndís fór síðan í nám til að verða samfélagstúlkur. „Rétt áður en ég lauk því greindist ég með brjóstakrabbamein,“ segir hún.
„Fötlunin fer ekki neitt“
Bjarndís segir að það sé ekkert leyndarmál að á örorkulífeyri megi hafa atvinnutekjur upp að ákveðnu marki.
„Gangi vel lækka greiðslurnar og falla á endanum niður, sem er einmitt allur tilgangurinn. Og frá 1. september 2025 er örorka metin varanlega, fram að 67 ára aldri. Endurmatið, sem þúsundir fóru í á hverju ári, heyrir sögunni til. Kerfið hefur sem sagt loksins viðurkennt það sem við vissum: fötlunin fer ekki neitt.“
Einangrun
Bjarndís segir einangrun oft fylgja.
„Vinirnir vinna, ferðast og fara í útilegur. Maður getur ekki alltaf verið með, stundum vegna heilsunnar og stundum vegna peninganna. Fyrst er manni boðið og maður afþakkar. Svo er manni boðið sjaldnar. Að lokum er hætt að gera ráð fyrir manni,“ segir hún.
„Enginn þarf að vera vondur til að þetta gerist. Lífið heldur bara áfram hjá hinum.“
„En ég er að reyna“
Síðustu þrjú ár hefur Bjarndís verið að byggja upp RúnaSpá, eða RuneScope, „þar sem fornar rúnir, daglegar spár, húmor og netverslun eiga að standa undir einni ansi þrjóskri konu.“
„Staðan í dag: skráð starfsemi, nokkrar vörur, allur kostnaðurinn og enginn viðskiptavinur. Enginn á launaskrá, ekki einu sinni ég […] Ég er ekki komin í mark. Ég er varla komin að byrjunarlínunni. En ég er að reyna […] Ég vildi óska að fleiri öryrkjar mættu reyna líka, án þess að allir í kringum þá gripu um höfuðið og hrópuðu: „ÞÚ MISSIR BÆTURNAR!““
Lestu pistilinn í heild sinni hér.
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗