Uppsagnir hjá Carbfix

Átta manns hefur verið sagt upp hjá Carbfix.

Átta manns hefur verið sagt upp hjá Carbfix. Ljósmynd/Aðsend

Átta störf verða lögð niður hjá Carbfix og fjögur færast til Orkuveitunnar samkvæmt tilkynningu frá félaginu. Breytingarnar eru hluti af nýrri stefnu sem felur í sér minni áherslu á eigin þróun og uppbyggingu stórra verkefna og aukna áherslu á sérfræðiþjónustu.

Í tilkynningunni segir að viðskiptaumhverfi Carbfix og umfang stærri verkefna hafi ekki þróast í takt við áætlanir. Félagið þurfi því að forgangsraða verkefnum, einfalda skipulag og varðveita þá þekkingu og hæfni sem mestu skipti fyrir framtíð þess. Fækkun starfsfólks nær þvert á fyrirtækið og skipuriti þess verður breytt.

„Það er mjög leitt að sjá á eftir mjög hæfu og reynslumiklu starfsfólki sem hefur staðið að þróun og hönnun stórra verkefna sem Carbfix býr nú að,“ segir í tilkynningunni.

Carbfix vinnur að varanlegri bindingu koldíoxíðs í bergi. Tækni félagsins felst í að leysa koldíoxíð upp í vatni og dæla því niður í berglög þar sem það binst í steindir.

Aukin áhersla á sérfræðiþjónustu 

Samkvæmt nýju stefnunni mun félagið leggja aukna áherslu á sérfræðiþjónustu sem byggir á tækni þess og hugverkaréttindum, auk þróunar staðlaðra vara og þjónustu. Markmiðið sé að koma tækninni í víðtækari notkun og tryggja að sérstaða og kjarnahæfni félagsins haldist sterk.

Erfiðara umhverfi

Carbfix segir alþjóðlegt viðskiptaumhverfi stórra verkefna á sviði föngunar og geymslu koldíoxíðs hafa reynst erfiðara en ráð var fyrir gert. Þar komi meðal annars til hærri kostnaður og breytingar á pólitískum stuðningi við loftslagsaðgerðir. Fjöldi verkefna í Evrópu og Norður-Ameríku hafi tafist, verið settur í bið eða lagður af.

Óvíst með styrk 

Ekki er nú lögð áhersla á uppbyggingu verkefna á borð við Coda Terminal hjá Carbfix fyrr en aðstæður breytast. Félagið segir þörfina fyrir slíka innviði áfram vera til staðar en hún tryggi ekki að forsendur einstakra verkefna gangi upp. Þekking sem hafi orðið til við þróun Coda geti nýst þegar aðstæður batni.

Þá segir félagið að ekki sé hægt að segja til um að svo stöddu hvort hægt verði að nýta 17 milljarða króna styrk úr Nýsköpunarsjóði Evrópusambandsins til verkefnisins.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅