Stofnandi Pizza Hut látinn
Bræðurnir Dan og Frank Carney stofnuðu Pizza Hut í Wichita í Kansas árið 1958 með láni frá móður sinni. Samsett mynd/Instagram/Ríkisháskólinn í Wichita/Joshua Hoehne/Unsplash
Dan Carney, annar stofnenda veitingakeðjunnar Pizza Hut, er látinn, 95 ára að aldri. Hann lést 13. nóvember, samkvæmt dánartilkynningu fjölskyldu hans, en bandarískir fjölmiðlar greindu frá andlátinu í gær.
Carney stofnaði Pizza Hut ásamt Frank bróður sínum í Wichita í Kansas árið 1958. Lítið fyrirtæki þeirra bræðra átti eftir að verða að alþjóðlegri veitingakeðju.
Fengu lán hjá mömmu
Hugmyndin að pítsustaðnum kviknaði eftir að bræðurnir sáu tímaritsgrein um vaxandi vinsældir pítsunnar, að því er bandaríski fréttamiðillinn CNN greinir frá. Þeir fengu 600 bandaríkjadali að láni hjá móður sinni til að koma rekstrinum af stað.
Samkvæmt frásögn Pizza Hut-safnsins við ríkisháskólann í Wichita hafði Dan aldrei bakað pítsu þegar hugmyndin kviknaði. Bræðurnir fengu því aðstoð við að læra handtökin áður en þeir hófu reksturinn.
Fyrsti staðurinn var opnaður á sama götuhorni og faðir þeirra hafði rekið matvöruverslun. Dan þekkti því verslunarrekstur frá unga aldri, enda hafði hann tekið að sér aukna ábyrgð í versluninni eftir andlát föður síns árið 1948, meðal annars við pantanir og heimsendingar.
Litli staðurinn varð að stórveldi
Fyrsti sérleyfisstaður Pizza Hut var opnaður í Topeka í Kansas og reksturinn óx síðar langt út fyrir landsteinana. Árið 1977 seldu bræðurnir keðjuna til PepsiCo.
Upprunalega veitingahúsið var síðar flutt á svæði ríkisháskólans í Wichita og hýsir nú safn um sögu Pizza Hut. Þar eru meðal annars varðveittir munir og gögn frá fyrstu árum rekstrarins.
Lét gott af sér leiða
Carney lauk viðskiptafræðinámi árið 1953 og MBA-námi við ríkisháskólann í Wichita árið 2004. Hann hélt lengi tengslum við háskólann og gegndi þar ýmsum trúnaðarstörfum.
Hann var einnig um árabil virkur í góðgerðarstarfi og gegndi stjórnarformennsku hjá rannsóknarstofnun um heilalömun í Kansas í meira en fimmtíu ár.
Frank Carney, bróðir hans og meðstofnandi Pizza Hut, lést árið 2020.
内容来自 Mbl.is - Matur,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/69/28/1692820.jpg)