Krímskagabrú endurreist: „Verður enn betri en áður“

Skjáskot frá úkraínsku leyniþjónustunni af Krímskagabrúnni eftir árás Úkraínumanna.

Skjáskot frá úkraínsku leyniþjónustunni af Krímskagabrúnni eftir árás Úkraínumanna. AFP

Stjórnvöld í Kreml segja að brúin sem tengir hernumda Krímskaga við Rússland verði „enn betri“ eftir að hún hefur verið endurreist í kjölfar umfangsmikillar úkraínskrar árásar sem olli verulegu tjóni.

„Það leikur auðvitað enginn vafi á því að brúin verður endurreist og verður enn betri en áður,“ sagði Dmítrí Peskov, talsmaður Kremlar, samkvæmt rússneskum ríkisfjölmiðlum.

Skjáskot úr myndskeiði á Telegram-reikningi Selenskís Úkraínuforseta sem á að sýna skemmdirnar á brúnni. AFP

Gerðu „fordæmalausa“ árás

Volodimír Selenskí Úkraínuforseti sagði í dag að stjórnvöld í Kænugarði hefðu gert „fordæmalausa“ árás á brúna til að hefna fyrir árásir Rússa á úkraínska innviði og sagði hana hafa valdið skemmdum á bæði vegar- og járnbrautarhluta brúarinnar.

Brúin var smíðuð eftir að Rússland innlimaði skagann við Svartahaf árið 2014 og um hana fara bæði lestir og bílar. Úkraínumenn hafa þó nokkrum sinnum gert árás á brúna eftir að Rússar réðust inn í Úkraínu árið 2022.  

Samsett mynd af brúnni fyrir og eftir árás Úkraínumanna.

Samsett mynd af brúnni fyrir og eftir árás Úkraínumanna. AFP

内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅