Eftirlýst norn í felum

Sólrún Ylfa og Tómas.

Sólrún Ylfa og Tómas. Ljósmynd/Aðsend

Hér er á ferðinni desembersaga komin út á bók sem vann fyrir sex árum samkeppni Borgarbókasafnsins og Bókmenntaborgarinnar um jóladagatal. Í bókinni er sagan með nýjum myndum og segir þar af kynnum þeirra Péturs og Stefaníu, krakka sem eru í öðrum og þriðja bekk grunnskóla, en þau lenda saman í harla óvenjulegu ævintýri.

Í upphafi bókar er Pétur að taka nýtt skref í lífinu, að ganga einn í skólann, en óttinn við hið óþekkta nær fljótt tökum á honum, vetrarmyrkrið kveikir á ríku ímyndunarafli og höfuð hans fyllist af mögulegum ófreskjum. Í þeim titrandi aðstæðum kynnist hann snjóboltakastaranum hræðilega, henni Stefaníu, hún er í ný í skólanum hans og kemur frá útlöndum.

Falleg og fyndin saga

Stefanía er opin og framtakssöm, með krafta í kögglum og vílar ekkert fyrir sér, en Pétur er aftur á móti hlédrægur og óöruggur, finnst óþægilegt að hitta nýtt fólk og getur ekki notað ókunnug klósett.

Fáðu aðgang að þessari grein

Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.

Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.

Tryggðu þér aðgang núna.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅