Lavrov segir Frakka taka beinan þátt í stríðinu
Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, sagði í dag að rússneskum stjórnvöldum væri kunnugt um að franskir hermenn hefðu verið sendir til Úkraínu.
Hann sagði veru þeirra þar jafngilda „beinni þátttöku“ í stríðinu og að áhyggjum Rússa hefði verið komið á framfæri við frönsk stjórnvöld.
„Við höfum komið áhyggjum okkar á framfæri […] þetta er ekki lengur stuðningur við Úkraínu heldur bein þátttaka í stríðinu,“ sagði Lavrov við blaðamenn.
Ummælin falla degi eftir að heimildarmaður greindi AFP og öðrum fjölmiðlum frá því að franskir hermenn hefðu starfað í Úkraínu í nokkra mánuði við þjálfun úkraínskra hermanna og aðstoð við viðhald búnaðar.
Taki ekki þátt í bardögum
Að sögn heimildarmannsins er um fámennan hóp franskra hermanna að ræða og tekur verkefni þeirra ekki til þátttöku í bardögum.
Heimildarmaðurinn ræddi við AFP gegn nafnleynd eftir að franska útvarpsstöðin Radio France Internationale, RFI, greindi fyrst frá veru hermannanna í Úkraínu í gær.
„Það er staðreynd að franskir þjálfarar sinna stuðningi við Úkraínu til skiptis í Frakklandi, Póllandi eða stöku sinnum í Úkraínu,“ sagði heimildarmaðurinn við AFP.
„En þetta er ekki hernaðaraðgerð. Það er alls enginn ásetningur um að beita hervaldi.“
内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗