Önnur stórsekt gæti beðið Temu
Temu hóf starfsemi á markaði Evrópusambandsins árið 2023 og eru notendur þar nú rúmlega 120 milljónir. AFP
Netverslunin Temu á yfir höfði sér aðra háa sekt frá Evrópusambandinu eftir að framkvæmdastjórn ESB komst í dag að þeirri bráðabirgðaniðurstöðu að fyrirtækið hefði ekki gripið til fullnægjandi aðgerða til að vernda neytendur gegn sölu á óöruggum vörum.
Temu, sem er í kínverskri eigu, var í maí gert að greiða 200 milljóna evra sekt, jafnvirði um 27,4 milljarða króna, fyrir að heimila sölu á ólöglegum vörum. Þar á meðal voru hættuleg leikföng fyrir ungbörn og gölluð hleðslutæki.
Framkvæmdastjórnin telur nú að Temu brjóti gegn fleiri ákvæðum laga ESB um stafræna þjónustu, DSA. Fyrirtækið hafi ekki komið á fullnægjandi og árangursríkum aðgerðum til að draga úr hættunni á að ólöglegar vörur séu boðnar til sölu.
Temu segist ósammála bráðabirgðamati framkvæmdastjórnarinnar.
Sektir geta numið 6% af heimsveltu
Temu hóf starfsemi á markaði Evrópusambandsins árið 2023 og eru notendur þar nú rúmlega 120 milljónir.
Samkvæmt lögunum um stafræna þjónustu geta sektir numið allt að 6% af árlegri heildarveltu fyrirtækis á heimsvísu.
Háttsettur embættismaður ESB segir nýju niðurstöðurnar varða þær aðgerðir sem Temu grípur til í því skyni að vernda notendur innan sambandsins. Sektin í maí hafi hins vegar varðað vanrækslu á að framkvæma fullnægjandi áhættumat til að greina þær hættur sem fylgdu starfseminni.
Seljendur geti ítrekað brotið reglur
Framkvæmdastjórnin segir Temu ekki hafa komið á skilvirku eftirliti með því hvort vörur uppfylli öryggiskröfur ESB. Meðal vöruflokka þar sem áhættan sé mikil séu leikföng, raftæki og snyrtivörur.
Þá séu viðurlög Temu gagnvart seljendum ekki nægilega fælandi. Seljendur geti gerst sekir um nokkur alvarleg brot, svo sem að selja vörur sem standast ekki öryggisprófanir, áður en Temu loki tímabundið einhverjum verslunum þeirra á sölutorginu.
Eftirlitsaðilar ESB komust að þeirri niðurstöðu að eftirlitskerfi Temu kæmi ekki í veg fyrir að óöruggar og ólöglegar vörur væru boðnar neytendum. Kerfið virtist fremur beinast að því hvort reglum fyrirtækisins væri fylgt en hvort vörurnar væru öruggar.
„Netverslun ætti ekki að hafa í för með sér hættu á að kaupa ólöglegar og óöruggar vörur,“ segir Henna Virkkunen, sem fer með tæknimál í framkvæmdastjórn ESB, í yfirlýsingu.
Hún segir bráðabirgðaniðurstöðurnar í máli Temu vera enn eitt skrefið í átt að öruggara netumhverfi.
内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗