Fjórðungur íslenskra blaðamanna hefur sleppt því að fjalla um mál af ótta við viðbrögðin

Þrír af hverjum fjórum blaðamönnum á Íslandi segjast hafa orðið fyrir áreitni eða fjandsemi og fjórðungur hefur sleppt því að fjalla um mál af ótta við viðbrögð. Þetta kemur fram í könnun sem Maskína gerði fyrir Blaðamannafélag Íslands (BÍ) en niðurstöðurnar voru kynntar á málþingi félagsins um upplýsingaheilindi í morgun.

Óttast viðbrögð

Könnunin sýndi einnig að mikill meirihluti blaðamanna hefur orðið var við aukna upplýsingaóreiðu síðustu þrjú árin, en sjö af hverjum tíu sögðu aukninguna mikla. Meirihluti svarenda, 57%, telur upplýsingaóreiðu vera mikið vandamál fyrir íslenska fjölmiðla og 59% telja óreiðuna hafa dregið úr trausti til almennings á meðan aðeins 29% telja óreiðuna hafa aukið traustið.

Blaðamenn sögðu upplýsingaóreiðuna helst koma frá hagsmunahópum, þá stjórnmálaflokkum, einstaklingum og erlendum aðilum. Voru blaðamenn spurðir hvort þeir hefðu orðið fyrir áreitni eða fjandsemi vegna fréttaflutnings af málum þar sem upplýsingaóreiða er algeng og svaraði mikill meirihluti því játandi, eða 75 prósent, og þar af sögðust 18% hafa orðið fyrir slíku oft eða fremur oft.

Af þeim sem hafa orðið fyrir áreitni eða fjandsemi nefna flestir móðganir (57%) og árásir á samfélagsmiðlum (55%). Nefndu 44% áreitni á netinu og 11% sögðust hafa orðið fyrir hótunum.

Aðspurðir um hvort blaðamenn hefðu ákveðið að fjalla ekki um mál vegna þeirra viðbragða í þeirra garð sem málið gæti haft svöruðu rúm 27% játandi. Hlutfallið var hærra meðal blaðamanna með minnstu reynsluna (minna en 5 ár) en þar sögðust 42% hafa veigrað sér við að fjalla um tiltekin mál.

Flestir telja sig færa um að greina milli óreiðu og réttra upplýsinga

Jákvæðu fréttirnar eru að flestir blaðamenn telja sig færa um að greina á milli upplýsingaóreiðu og réttra upplýsinga og að vinnustaðir þeirra séu í stakk búnir til að takast á við slíka óreiðu. Meirihluti telur þó þörf á frekari fræðslu fyrir starfandi blaðamenn en aðspurðir um hvers konar fræðsla myndi nýtast best sögðu 36,8% staðreyndaprófun, 18,7% sögðu greiningu gervigreindarefnis, 9,9% sögðu greiningu erlendra áhrifaaðgerða, 6,4% nefndu öryggi á netinu og 4,1% sögðu viðbrögð við áreitni og hótunum.

Nær allir svarendur, eða 93%, sögðust hafa orðið varir við gervigreindarefni sem var sett fram sem raunverulegt og tæpur helmingur sagðist hafa tekið eftir slíku mjög eða nokkuð oft.

„Vandi alls samfélagsins“

Formaður BÍ, Sigríður Dögg Auðunsdóttir, segir það vandamál fyrir samfélagið í heild þegar um fjórðungur blaðamanna er farinn að veigra sér við að fjalla um mál af ótta við viðbrögð.

„Þegar fjórðungur blaðamanna segist hafa sleppt því að fjalla um mál af ótta við viðbrögðin er það ekki einkamál blaðamanna heldur vandi alls samfélagsins. Upplýsingaóreiða snýst ekki bara um rangar fréttir. Henni fylgja áreitni og fjandsemi sem hafa bein áhrif á hvaða mál komast á dagskrá. Blaðamenn eiga ekki að þurfa að vega eigið öryggi á móti rétti almennings til upplýsinga.“

Á málþinginu fjallaði Nic Newman frá Reuters Institute við Oxford-háskóla um áskoranir fréttamiðla vegna gervigreindar og minnkandi trausts. Hulda Þórisdóttir, prófessor í stjórnmálafræði, skýrði frá fyrstu niðurstöðum NORDREN-verkefnisins um upplýsingaóreiðu á Íslandi. Að því loknu ræddu fulltrúar ritstjórna niðurstöðurnar í pallborði og Bogi Ágústsson fréttamaður hélt erindi um mikilvægi upplýsingaheilinda, trausts og vandaðrar blaðamennsku.

Könnunin var lögð fyrir félagsmenn BÍ á tímabilinu 26. október til 11. nóvember. Svarendur voru 171 og svarhlutfallið því 55%.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅