96 ára milljarðamæringur gefur 700 milljarða

Bandaríski milljarðamæringurinn Warren Buffett ætlar að gefa hlutabréf að verðmæti um 5,5 milljarða Bandaríkjadala, jafnvirði tæplega 700 milljarða íslenskra króna, til góðgerðarsjóða fjölskyldu sinnar í tilefni þakkargjörðarhátíðarinnar.

Frá þessu greinir fréttastofan AP, en gjöfin er sú langstærsta sem hann hefur gefið.

Buffett, sem er 96 ára gamall, hefur lengi stefnt að því að gefa allan auð sinn til góðgerðarmála.

Samkvæmt nýjustu áætlun hans verða öll hlutabréf hans í fjárfestingafélaginu Berkshire Hathaway komin í hendur fjögurra góðgerðarsjóða tengdra þremur börnum hans fyrir árið 2034.

Sjóðirnir styrkja meðal annars menntun barna, heilbrigðisþjónustu, baráttu gegn hungri og verkefni til stuðnings konum og stúlkum víða um heim.

Buffett segist bera fullt traust til barna sinna, sem hafi um áratugaskeið sýnt góða dómgreind við úthlutun styrkja.

Í yfirlýsingu sinni lagði fjárfestirinn jafnframt áherslu á mikilvægi mannúðar og hvatti fólk til að þakka þeim sem hefðu reynst því vel í lífinu.

„Enn betra er að gera sjálfur eitthvað gott fyrir aðra,“ skrifaði hann í yfirlýsingu sem AP vitnar til.

Buffett hefur á þessu ári einnig ákveðið að hætta framtíðarframlögum til Gates Foundation sem um árabil hefur verið helsti viðtakandi góðgerðargjafa hans.

Hann segir ákvörðunina fyrst og fremst byggjast á trausti sínu til barnanna, sem muni nú taka við stærra hlutverki við ráðstöfun auðæfanna.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅