Harðneitar fyrir að halda framhjá óléttri eiginkonu sinni - Meint hjákona var áður með vini hans
Brasilíska knattspyrnustjarnan Neymar hefur vísað harðlega á bug ásökunum um að hafa haldið fram hjá barnshafandi kærustu sinni, Brunu Biancardi.
Neymar, sem er 34 ára, hefur verið sakaður um að hafa kysst áhrifavaldinn Virginiu Fonseca, 27 ára, í einkasamkvæmi í São Paulo.
Brasilíski blaðamaðurinn Fabia Oliveira greindi fyrst frá málinu og sagði að gestum hefði verið bannað að nota síma á samkomunni.
Ónafngreindir gestir héldu því fram að Neymar og Fonseca hefðu verið mjög náin og að hún hefði meðal annars dansað í kjöltu hans.
Fyrrverandi unnusta Vini Jr.
Bæði Neymar og Fonseca hafa alfarið hafnað ásökununum. Engar myndir eða myndskeið hafa komið fram sem staðfesta frásögnina.
Neymar ákvað að tjá sig sjálfur við 420 milljónir fylgjenda sinna á Instagram. „Ég geri yfirleitt ekki svona í gegnum Instagram-sögur, en nú gekk þetta of langt.“
„Það er saga í gangi um að ég sé í sambandi við aðra manneskju og ég neita því alfarið.“
Hann sagðist jafnframt sorgmæddur yfir því að fólk hefði meiri áhuga á slúðri en sannleikanum.
Neymar og Biancardi eiga von á sínu þriðja barni saman. Fonseca, sem áður var í sambandi með Vinicius Junior, hefur einnig neitað öllu.
Neymar lauk yfirlýsingunni á léttum nótum og sagðist einfaldlega vilja fá að spila póker í friði.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗