Prís-forstjórinn fyrrverandi stefnir Samkaupum – Málið snýst ekki um vangoldin laun
Ágúst Borgþór Sverrisson
Þriðjudaginn 17. nóvember 2026 11:30
Gréta María Grétarsdóttir. Mynd: DV.
Gréta María Grétarsdóttir, fyrrverandi framkvæmdastjóri Prís og Heimkaupa, hefur stefnt fyrrverandi vinnuveitanda sínum, Samkaupum, fyrir dóm. Fyrirtaka verður í málinu við Héraðsdóm Reykjavíkur á morgun.
Vísir.is greindi frá þessu og byggir á upplýsingum í dagskrá dómstólanna. Þar er málið flokkað sem vinnulaunamál.
Í samtali við DV segir Gréta hins vegar að málið snúist ekki um vangoldin laun og hún eigi ekki inni laun hjá fyrirtækinu.
„Málið snýst um skýrt ákvæði í ráðningarsamningi mínum sem hefur ekki verið efnt. Ég er einfaldlega að sækja það sem um var samið,“ segir Gréta. DV bað um nánari upplýsingar um þetta ákvæði og þá svaraði Gréta:
„Leyfum þessu bara að hafa sinn gang, þinghaldið er svo eftir tvær vikur.“
Gréta var framkvæmdastjóri lágvöruverslunarinnar Prís frá ágústmánuði árið 2025 en hætti síðan óvænt störfum þar í desember sama ár. Eins og kemur fram í frétt Vísis um málið tengist Prís athafnamanninum Jóni Ásgeiri Jóhannssyni:
„Prís og Heimkaup eru bæði í eigu Samkaupa. Samkaup eru svo í eigu Dranga hf., sem er í meirihlutaeigu Skeljar hf. Skel er skráð á markað en er þó í meirihlutaeigu Strengs hf. Þar hefst önnur eigandaflétta félaga en Jón Ásgeir Jóhannesson er stjórnarformaður bæði Strengs og Dranga.“
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗