Leiðinlegar fréttir fyrir Andra Lucas

Andri Lucas Guðjohnsen hefur raðað inn mörkum fyrir Tony Mowbray síðustu mánuði. LJósmynd/Alex Nicodim

Tony Mowbray hefur hætt sem knattspyrnustjóri Blackburn Rovers í ensku B-deildinni af heilsufarsástæðum. Íslenski landsliðsframherjinn Andri Lucas Guðjohnsen hefur verið á skotskónum hjá liðinu undir stjórn hans.

Mowbray, sem er 62 ára, tók aftur við Blackburn í júní. Hann þekkti þá vel til hjá félaginu eftir að hafa stýrt liðinu á árunum 2017 til 2022.

Slæm heilsa neyddi hann einnig til að stíga til hliðar hjá Birmingham City snemma árs 2024. Síðar upplýsti hann að hann hefði gengist undir meðferð vegna ristilkrabbameins.

Í kveðju sinni til Blackburn hrósar Mowbray leikmönnum fyrir fagmennsku og hollustu. Hann segist vera stoltur af hópnum og samstarfið hafi veitt honum mikla ánægju.

Blackburn er í 13. sæti B-deildarinnar. Á síðustu leiktíð barðist liðið lengi við fall en hafnaði að lokum í 20. sæti, fimm stigum frá fallsæti.

Andri hefur skorað tíu mörk í 14 leikjum í ensku B-deildinni undir stjórn Mowbrays á tímabilinu. Þá hefur hann bætt við einu marki í deildabikarnum og er því kominn með ellefu mörk í 15 leikjum fyrir Blackburn í öllum keppnum.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅