Enn eitt áfallið fyrir Viðreisn

Guðrún Hafsteinsdóttir og Ingvar Þóroddsson stilltu sér upp fyrir myndatöku í Alþingisgarðinum.

Óvenjudauft hefur verið yfir Alþingi það sem af er þingi, en það breyttist í gær. Ingvar Þóroddsson þingmaður Norðausturkjördæmis tilkynnti að hann hefði sagt skilið við Viðreisn og gengið til liðs við Sjálfstæðisflokkinn. Ákvörðun hans kom síður en svo sem þruma úr heiðskíru lofti en áfallið er þrátt fyrir það mikið fyrir Viðreisn og bætir enn á þau áföll sem á undan hafa gengið.

Vandræðagangur Viðreisnar virðist vera kominn því sem næst á par við vandræði Flokks fólksins framan af kjörtímabili. Snemma á árinu sagði Guðbrandur Einarsson þingmaður Viðreisnar af sér þingmennsku þegar hann stóð frammi fyrir því að samskipti hans við vændiskonu yrðu opinberuð. Þá beið mikilvægasta stefnumál flokksins skipbrot þegar þjóðin hafnaði aðildarviðræðum við Evrópusambandið í þjóðaratkvæðagreiðslu.

Fáðu aðgang að þessari grein

Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.

Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.

Tryggðu þér aðgang núna.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅