Lítið kot fyrir 2,9 milljónir
Lóð í Stráskógarbyggð með litlum skúr og hjólhýsi fæst fyrir slikk. Samsett mynd/Af fasteignavef mbl.is
Dreymir þig um sumarbústað en hefur alls ekki efni á því? Í Stráskógarbyggð er vegleg átta þúsund fermetra lóð með hjólhýsi og litlum skúr. Allt sem þarf til þess að koma sér af stað. Lóðin kostar 2,9 milljónir sem er ekki neitt eins og fasteignamarkaðurinn er í dag.
Stráskógarbyggð er sumarhúsasvæði í dreifbýli Borgarbyggðar og er staðsett í landi Stóra fjalls og Túns. Jörðin er gróðursæl og því afbragðsland til þess að koma sér vel fyrir.
Á lóðinni eru bæði hjólhýsi og skúr. Eignirnar eru reyndar í slæmu ástandi eins og stendur í auglýsingunni og mögulega ekki stöðuleyfi fyrir húsunum. Í hjólhýsinu er sófi og svefnaðstaða. Svo er stutt í sund í Borgarnesi sem er ein besta sundlaug landsins.
Það er ekki á hverjum degi sem fólk fær sælureit fyrir 2,9 milljónir.
内容来自 Mbl.is - Smartland,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗


