Greitt fyrir raunverulega þyngd úrgangsins

Nokkur umræða hefur skapast að undanförnu um gjaldtöku fyrir úrgang frá iðnaðarmönnum og verktökum. Ljósmynd/Aðsend

Iðnaðarmenn og verktakar geta komið með úrgang á móttökustöð Terra að Berghellu 1 í Hafnarfirði og greitt samkvæmt raunverulegri þyngd hans. Þar er notast við vigtun í stað þess að áætla rúmmál farmsins.

Þetta kemur fram í tilkynningu en nokkur umræða hefur skapast að undanförnu um gjaldtöku fyrir úrgang frá iðnaðarmönnum og verktökum. Þar hefur meðal annars verið kallað eftir skýrari og gagnsærri aðferðum við að ákvarða magn úrgangs.

Greint var frá umræðum í Facebook-hópnum Iðnaðarmenn Íslands í frétt Morgunblaðsins um helgina. „Allt í einu er starfsmaðurinn í hliðinu orðinn sérfræðingur í rúmfræði og rúmmálsútreikningum og á að meta með augunum hvort ég eigi að borga 10.000 kr. eða 70.000 kr. fyrir að losa mig við ruslið,“ var haft eftir málshefjanda. Þá hefðu margir meðlimir hópsins tekið undir ábendingar hans um að ótrúlegt sé að verðlagning geti byggst á svo huglægu mati.

Við komu er bíllinn vigtaður, úrgangurinn losaður í viðeigandi flokka og bíllinn síðan vigtaður aftur við brottför. Ljósmynd/Aðsend

Gjaldtakan miðast við kíló og úrgangsflokk

„Fyrirkomulagið er einfalt. Við komu er bíllinn vigtaður, úrgangurinn losaður í viðeigandi flokka og bíllinn síðan vigtaður aftur við brottför. Þannig fæst fram raunveruleg þyngd úrgangsins sem skilað er inn og gjaldtakan miðast við kíló og viðkomandi úrgangsflokk,“ er haft eftir Gísla Þór Arnarsyni, framkvæmdastjóra þjónustu hjá Terra, í tilkynningunni.

Markmið Terra sé að bjóða fyrirtækjum þægilega og skilvirka þjónustu þar sem skýrt er hvernig gjaldtaka fer fram.

„Á móttökustöðinni er tekið á móti fjölbreyttum úrgangsflokkum, meðal annars timbri, plasti, pappa, málmum, gleri og blönduðum rekstrarúrgangi. Starfsfólk er á staðnum til að aðstoða við flokkun og leiðbeina viðskiptavinum. Þjónustan stendur bæði fyrirtækjum í reikningsviðskiptum við Terra og þeim sem kjósa að greiða á staðnum til boða.“

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅