„Ég skal falla á þetta sverð“
Torfi Stefán Jónsson, fræðslufulltrúi Þingvallaþjóðgarðs, segir frá ástæðu þess að skiltavillan fór á flakk. Samsett mynd/Aðsend/mbl.is/Eggert
Stafsetningarvilla á skiltum þar sem varað er við vasaþjófum við Gullfoss og Geysi hefur vakið kátínu meðal gárunga sem láta sér fátt óviðkomandi. Hönnun skiltanna hefur einnig vakið athygli.
Bent hefur verið á villu í enska textanum á skiltunum, en á þeim stendur: „Varið ykkur á vasaþjófum: Beware of pickpockers“. Bókstafurinn r hefur komið í stað t í orðinu „pickpockets“.
Það sem hefur vakið furðu er að sama stafsetningarvilla blasti við gestum þjóðgarðsins á Þingvöllum fyrir einu til tveimur árum.
Villan var þar á tveimur skiltum sem sett voru upp til að vara fólk við vasaþjófum.
Fengu skjal með villunni sent
En hvað skýrir að sama villa var á Þingvöllum og er nú við Gullfoss og Geysi?
Skýringuna er að finna hjá Torfa Stefáni Jónssyni, fræðslufulltrúa þjóðgarðsins á Þingvöllum, en hann ber að eigin sögn ábyrgð á hönnun skiltanna og textanum á þeim.
„Þetta var bara smá klúður. Ég skal falla á þetta sverð. Þetta var fljótfærni og gert í flýti,“ segir Torfi.
Að sögn Torfa hefur stafsetningarvillan á skiltunum á Þingvöllum verið leiðrétt.
„Þeir hjá Gullfossi og Geysi fengu sama skjal og ég gerði einhvern tímann sent til sín og þar var villan inni,“ segir Torfi.
Í framhaldinu hafi ný skilti verið prentuð eftir skjalinu og sett upp við Gullfoss og Geysi með
sömu stafsetningarvillu.
„Ég var að gera þetta skilti í miklum flýti og þetta er ekkert annað en klaufaleg mistök.“
Varhugavert fyrir Ameríkana
Hönnun skiltanna hefur einnig vakið kátínu. Sumum þykir taskan sem fígúran á skiltinu ber minna á karlmannstösku að hætti Joey Tribbiani úr sjónvarpsþáttunum Friends. Á töskunni er svo dollaramerki.
Einn gamansamur netverji orðaði það svo að fólk þyrfti ekki að óttast vasaþjófa svo lengi sem það væri ekki frá Ameríku og vísaði þar til dollaramerkisins á töskunni.
„Ég á öll mistökin í tengslum við þetta skilti. Það er ekki hægt að benda á neinn annan,“ segir Torfi kíminn.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
