Hamskipti á vedur.is

Svona lítur nýi Veðurstofuvefurinn út.

Svona lítur nýi Veðurstofuvefurinn út. Skjáskot/Veðurstofa Íslands

Ný vefsíða Veðurstofu Íslands er komin í loftið og má segja að vefurinn hafi fengið allsherjar yfirhalningu. Slóðin er sú sama og áður, vedur.is, en útlitið er gjörbreytt. 

Í tilkynningu segir að nýr vefur veiti veðurspár fyrir mun fleiri staði, fleiri möguleika á kortum og betri yfirsýn yfir viðvaranir og náttúruvá. Opnunin er fyrsti áfangi í endurnýjun vefsvæða Veðurstofunnar sem á að gera mikilvægar upplýsingar skýrari og aðgengilegri.

Nýi vefurinn hefur verið í prófunum undanfarið árið en á síðasta ári var opnuð prufuútgáfan gottvedur.is.

Tæplega 20 ára gamall

Eldri vefsíða Veðurstofunnar hefur þjónað landsmönnum í nærri því tvo áratugi og á þeim tíma, segir í tilkynningu, hafa tæknin og þarfir notenda breyst mikið. Nýi vefurinn gefur færi á að nýta gögn Veðurstofunnar betur og þróa stafræna þjónustu áfram. 

„Vefurinn er unninn í samstarfi við Origo og Metall Design Studio. Að baki honum er einnig umfangsmikil endurnýjun á tæknilegum innviðum vefsins þar sem gerðar eru miklar kröfur um rekstraröryggi. Það skiptir sérstaklega máli þegar náttúruvá steðjar að og margir sækja upplýsingar samtímis en ekki síður á tímum þegar netárásum á mikilvæga stafræna innviði fjölgar,“ segir í tilkynningu. 

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅