19 milljóna kauptilboð í íbúð dæmt ógilt
Konan gerði manninum tilboð í um 104 fermetra raðhúsaíbúð hans í lok júlí 2025. Hann samþykkti það 4. ágúst sama ár. Kaupverðið var 19 milljónir króna og átti að greiðast við undirritun kaupsamnings. mbl.is/Eggert
Héraðsdómur Norðurlands vestra hefur ógilt samþykkt 19 milljóna króna kauptilboð konu í íbúð aldraðs manns sem dvaldi á hjúkrunarheimili.
Konan vissi að maðurinn hafði veitt frænda sínum umboð til að annast fjármál sín en samdi engu að síður beint við hann án þátttöku umboðsmannsins.
Dómurinn taldi getu mannsins til að taka upplýsta ákvörðun um söluna hafa verið verulega skerta. Staða samningsaðila hefði verið ójöfn og konan sýnt af sér nokkurt aðgæsluleysi við samningsgerðina.
Dómurinn féll 9. nóvember en var birtur í gær. Konunni var gert að greiða dánarbúi mannsins 1,4 milljónir króna í málskostnað.
Lést tæpum þremur mánuðum síðar
Konan gerði manninum tilboð í um 104 fermetra raðhúsaíbúð hans í lok júlí 2025. Hann samþykkti það 4. ágúst sama ár. Kaupverðið var 19 milljónir króna og átti að greiðast við undirritun kaupsamnings.
Tveir starfsmenn hjúkrunarheimilisins vottuðu undirritun, dagsetningu og hæfi aðila. Maðurinn lést 31. október sama ár, 84 ára að aldri.
Dánarbú hans höfðaði mál til að fá kauptilboðinu hnekkt. Konan krafðist sýknu og höfðaði gagnsök þar sem hún krafðist þess að búinu yrði gert að gefa út afsal fyrir íbúðinni gegn greiðslu kaupverðsins.
Hún hélt því fram að maðurinn hefði viljað selja sér eignina og gert sér fulla grein fyrir ákvörðun sinni. Þau hefðu þekkst um árabil og hún hefði hvorki þurft að sannfæra hann um söluna né beitt hann þrýstingi. Þá hefði hún leitað ráðgjafar fasteignasölu um verðmæti íbúðarinnar.
Vitræn geta verulega skert
Við mat á ástandi mannsins leit dómurinn meðal annars til álitsgerðar hjúkrunarfræðings og deildarstjóra á hjúkrunarheimilinu og framburðar hennar fyrir dómi. Þar var lýst versnandi heilsu hans og skerðingu á vitrænni getu.
Ekki lágu fyrir sjúkraskrárgögn, læknisvottorð eða matsgerð dómkvadds matsmanns um ástand hans þegar hann samþykkti tilboðið. Dómurinn taldi þau gögn og þann framburð sem lágu fyrir engu að síður nægja til að draga ályktanir um getu hans. Öldrunarlæknir var meðal þriggja dómenda málsins.
Niðurstöður prófa sem lögð voru fyrir manninn í september og október 2025 bentu að mati dómsins til þess að vitræn skerðing hans hefði þá verið komin á stig heilabilunar. Miðað við heilsufarssögu hans og stuttan tíma á milli væri mjög líklegt að svo hefði einnig verið þegar hann samþykkti tilboðið í byrjun ágúst.
Dómurinn lagði því til grundvallar að geta hans til að meta þau atriði sem nauðsynleg væru við upplýsta ákvörðun um sölu íbúðarinnar hefði verið verulega skert.
Vitneskja kaupandans ósönnuð
Dómurinn taldi þó ósannað að konan hefði vitað eða mátt vita hvernig vitrænni getu mannsins var háttað. Ekki væri hægt að ráða af gögnunum að skerðingin hefði átt að vera öllum ljós sem áttu samskipti við hann.
Þá væri ósannað að bersýnilegur munur hefði verið á verðmæti íbúðarinnar og umsömdu kaupverði. Tvö verðmöt fasteignasala lágu fyrir, annað upp á 31 milljón króna en hitt um 23 milljónir. Síðara matið var gert með þeim fyrirvara að fasteignasalinn hefði ekki skoðað eignina.
Ekki var því fallist á að ógilda kauptilboðið á grundvelli ákvæða samningalaga um misneytingu eða óheiðarleika.
Hefði þurft að gæta sérstakrar varfærni
Dómurinn taldi hins vegar skilyrði til að víkja kauptilboðinu til hliðar á grundvelli 36. greinar samningalaga. Samkvæmt henni má meðal annars víkja samningi til hliðar ef ósanngjarnt yrði talið að bera hann fyrir sig.
Við það mat var litið til þess að konan naut ráðgjafar fasteignasala en ekki lá fyrir að maðurinn hefði notið slíkrar ráðgjafar. Hún vissi einnig að hann hafði veitt frænda sínum umboð til að annast fjármál sín og gæta fasteignarinnar.
Þótt ekki væri sannað að konan hefði vitað af vitrænni skerðingu mannsins hefði hún vitað, eða mátt vita, að hann væri aldraður og heilsuveill. Við þær aðstæður hefði þurft að gæta sérstakrar varfærni við samninga um mikilvæga hagsmuni hans.
Dómurinn taldi hana hafa sýnt af sér nokkurt aðgæsluleysi með því að semja við manninn án þátttöku umboðsmanns hans. Að heildarmati var kauptilboðið því dæmt ógilt og skal afmáð úr veðbókum. Dánarbúið var jafnframt sýknað af kröfu konunnar um útgáfu afsals.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗