Körfuboltamaður grunaður um stórfellt fíkniefnasmygl

Greene Da'monte Khiree var handtekinn á flugvellinum.

Greene Da'monte Khiree var handtekinn á flugvellinum. Ljósmynd/NDLEA

Bandarískur körfuboltamaður var handtekinn á alþjóðaflugvellinum í Lagos í Nígeríu eftir að tæp 34 kíló af kannabis fundust í tveimur ferðatöskum merktum honum, samkvæmt fíkniefnayfirvöldum þar í landi.

Maðurinn er 28 ára og var nafngreindur sem Greene Da'monte Khiree. Hann kom til landsins frá Taílandi og sagðist ætla að afla sér tengsla vegna körfuboltaferils síns.

Að sögn fíkniefnalöggæslustofnunarinnar NDLEA vaknaði grunur þegar hann hugðist yfirgefa flugvöllinn með handfarangur án þess að sækja innritaðar töskur. Við leit fundust 32 pakkar af sterku kannabisafbrigði og staðsetningarbúnaður.

Stofnunin telur upplýsingar úr síma hans benda til þess að hann hafi vitað af smyglinu og tekið þátt í því. Hann hefur ekki svarað ásökununum opinberlega.

Leikmaður að nafni Damonte Greene er skráður hjá Alþjóðakörfuknattleikssambandinu, FIBA, og keppti í Phuket Elite Cup í Taílandi í september. Hann lék áður með bandaríska hálfatvinnumannaliðinu Georgia Bombers.

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅