Guðbjörg og Vilmar Freyr ráðin til starfa
Lögmennirnir Guðbjörg Þorsteinsdóttir og Vilmar Freyr Sævarsson hafa gengið til liðs við KPMG Law.
Guðbjörg kemur frá Deloitte Legal, þar sem hún var meðeigandi, en Vilmar snýr aftur til KPMG eftir að hafa gegnt starfi yfirmanns alþjóðaskattamála hjá fjármála- og efnahagsráðuneytinu.
„Guðbjörg á að baki tæplega tveggja áratuga starfsferil hjá Deloitte og Deloitte Legal. Hún hefur víðtæka reynslu af skatta- og lögfræðiráðgjöf til innlendra og erlendra aðila. Helstu verkefnin hafa tengst kaupum og sölu fyrirtækja, samrunum og endurskipulagningu fyrirtækja, alhliða lögfræðiþjónustu til fyrirtækja og málarekstri á sviði skattamála,“ segir í tilkynningu.
„Vilmar starfaði áður hjá KPMG á árunum 2010–2020. Frá árinu 2020 hefur hann gegnt starfi yfirmanns alþjóðaskattamála hjá fjármála- og efnahagsráðuneytinu. Þar hefur hann meðal annars haft umsjón með gerð tvísköttunarsamninga og verið aðalsamningamaður Íslands við gerð þeirra. Hann tók jafnframt þátt í alþjóðlegu samstarfi á vettvangi Norðurlandanna, Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD) og Sameinuðu þjóðanna,“ segir einnig í tilkynningunni.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗