Segir mögulegt hrun veltihringrásar varða þjóðaröryggi
Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, og Simon Watts, ráðherra loftslagsmála Nýja-Sjáland, héldu blaðamannafund þar sem sjónum var beint að því hvernig efla megi alþjóðlega samvinnu um jarðhita. Ljósmynd/Stjórnarráðið
Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, segir sérstakar áhyggjur Íslands í loftslagsmálum beinast að mögulegri veikingu eða hruni veltihringrásar Atlantshafsins.
Áhættan hafi þegar verið tekin til umfjöllunar í tengslum við þjóðaröryggi og unnið sé að því að efla vísindasamstarf, vöktun og viðbúnað.
Þetta kom fram í ávarpi ráðherrans á leiðtogahluta loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, COP31, í Antalya í Tyrklandi í dag, samkvæmt tilkynningu ráðuneytisins.
Jóhann Páll lagði áherslu á að loftslagsbreytingar væru ógn við þjóðaröryggi. Hlýnun umfram 1,5 gráður yki hættuna á að farið yrði yfir mikilvæg vendipunktamörk í náttúrulegum kerfum jarðar. Slíkir vendipunktar gætu haft snöggar, óafturkræfar og keðjuverkandi afleiðingar.
Veltihringrás Atlantshafsins, AMOC, gegnir lykilhlutverki í loftslagi Norður-Atlantshafsins.
Samstöðuleysi réttlæti ekki aðgerðarleysi
Ráðherrann sagði skort á pólitískri samstöðu ekki mega standa í vegi fyrir aðgerðum.
„Vendipunktar bíða ekki eftir pólitískri samstöðu. Samstaða er mikilvæg, en skortur á henni má aldrei verða afsökun fyrir aðgerðarleysi.“
Hann fjallaði einnig um hvernig alþjóðleg spenna og óvissa hefðu sýnt fram á áhættuna sem fylgdi því að reiða sig á innflutt jarðefnaeldsneyti.
Orkuöryggi og loftslagsöryggi yrðu ekki aðskilin. Því hraðar sem ríki byggðu upp hrein orkukerfi, þeim mun betur væru þau í stakk búin til að takast á við bæði loftslagsvá og breyttar aðstæður í alþjóðamálum.
Jarðhiti fái meiri athygli en áður
Jóhann Páll kynnti einnig reynslu Íslands af jarðhitanýtingu á blaðamannafundi með Simon Watts, ráðherra loftslagsmála Nýja-Sjálands, og fulltrúum alþjóðlegu samtakanna Clean Air Task Force og Ungverjalands. Þar var fjallað um leiðir til að efla alþjóðlegt samstarf um jarðhita.
„Jarðhiti hefur aldrei áður fengið jafn mikla athygli á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna og nú. Það endurspeglar vaxandi skilning á því að áreiðanleg, endurnýjanleg orka er ekki aðeins lykill að því að draga úr losun heldur einnig að orkuöryggi, efnahagslegum stöðugleika og viðnámsþrótti samfélaga,“ segir ráðherrann í tilkynningunni.
Ísland og Nýja-Sjáland hafa átt í nánu samstarfi á þessu sviði frá því að ráðherrarnir undirrituðu viljayfirlýsingu á COP30 í fyrra. Markmiðið er að efla jarðhitarannsóknir, þróa borunartækni og vinna að næstu kynslóð jarðhitakerfa.
Auðlindirnar nægi ekki einar og sér
Jóhann Páll segir miðlun þekkingar og tækni geta dregið úr áhættu og flýtt þróun jarðhitanýtingar.
„Engin ein þjóð býr yfir allri þeirri þekkingu, tækni og fjárfestingargetu sem þarf til að nýta jarðhita á heimsvísu. Með því að deila reynslu, rannsóknum og tækni getum við dregið úr áhættu, flýtt þróun og opnað ný tækifæri fyrir fleiri ríki,“ segir hann.
Í tilkynningunni er bent á áratuga reynslu Íslands af jarðhitanýtingu og miðlun þekkingar til annarra ríkja, meðal annars í gegnum Jarðhitaskólann. Þar hafi hundruð sérfræðinga frá fjölmörgum löndum hlotið þjálfun.
Ráðherrann segir umbreytingu orkukerfa þó ekki verða sjálfkrafa þótt náttúruauðlindir séu til staðar. Til þess þurfi langtímastefnu, fjárfestingar, rannsóknir og uppbyggingu innviða. Reynsla Íslands geti nýst öðrum ríkjum við að styrkja orkuöryggi og flýta orkuskiptum.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗