Hamskipti á vedur.is
Ný vefsíða Veðurstofu Íslands er komin í loftið og má segja að vefurinn hafi fengið allsherjar yfirhalningu. Slóðin er sú sama og áður, vedur.is, en útlitið er gjörbreytt.
Í tilkynningu segir að nýr vefur veiti veðurspár fyrir mun fleiri staði, fleiri möguleika á kortum og betri yfirsýn yfir viðvaranir og náttúruvá. Opnunin er fyrsti áfangi í endurnýjun vefsvæða Veðurstofunnar sem á að gera mikilvægar upplýsingar skýrari og aðgengilegri.
Nýi vefurinn hefur verið í prófunum undanfarið árið en á síðasta ári var opnuð prufuútgáfan gottvedur.is.
Tæplega 20 ára gamall
Eldri vefsíða Veðurstofunnar hefur þjónað landsmönnum í nærri því tvo áratugi og á þeim tíma, segir í tilkynningu, hafa tæknin og þarfir notenda breyst mikið. Nýi vefurinn gefur færi á að nýta gögn Veðurstofunnar betur og þróa stafræna þjónustu áfram.
„Vefurinn er unninn í samstarfi við Origo og Metall Design Studio. Að baki honum er einnig umfangsmikil endurnýjun á tæknilegum innviðum vefsins þar sem gerðar eru miklar kröfur um rekstraröryggi. Það skiptir sérstaklega máli þegar náttúruvá steðjar að og margir sækja upplýsingar samtímis en ekki síður á tímum þegar netárásum á mikilvæga stafræna innviði fjölgar,“ segir í tilkynningu.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗