Leist ekki á blikuna í upphafi

Aðstæður við Krossanes í óveðrinu á föstudag eru sagðar hafa verið afar krefjandi. Ljósmynd/Samherji/Súlur

„Tilfinningin var hrikaleg þegar maður sá þetta fyrst. Mér leist ekkert á blikuna og hugsaði hvað myndi gerast ef þessi endi slitnaði,“ segir Guðmundur Þ. Jónsson, skipstjóri á Vilhelm Þorsteinssyni EA, um aðstæðurnar sem sköpuðust við Krossanes síðasta föstudagskvöld.

Þar blasti við honum að bryggjupollar höfðu gefið sig í óveðrinu sem þá gekk yfir. Skipið hafði losnað frá bryggju og hékk á einni taug að framan.

Skipið er óskemmt

„Manni fannst þetta auðvitað vera óratími á meðan beðið var eftir dráttarbát en raunverulega gekk þetta allt saman ótrúlega fljótt. Þetta eru um 40 mínútur sem liðu frá því kallað er eftir aðstoð og þangað til við erum komnir um borð í skipið,“ segir hann í umfjöllun um atvikið á vef Samherja.

Fram kemur að þrátt fyrir erfiðar aðstæður hafi tekist að koma áhöfn um borð, ná stjórn á skipinu og koma því örugglega að Oddeyrarbryggju.

„Skipið var skoðað ítarlega um helgina og reyndist sem betur fer óskemmt,“ segir þar jafnframt.

Skipstjórarnir á Vilhelm Þorsteinssyni EA, þeir Birkir Hreinsson og Guðmundur Þ. Jónsson. Ljósmynd/Samherji


Guðmundur er sagður hafa verið á meðal þeirra fyrstu á vettvang, en hann býr nálægt bryggjunni og horfði á óveðrið skella á af fullum þunga.

Allir ræstir út

„Ég var náttúrulega bara heima í glugga að fylgjast með. Ég var hálfsmeykur við að þetta væri ekki alveg eðlilegt ástand og ákvað að fara niður eftir. Þegar ég var á leiðinni í bílinn kemur hringingin um að skipið sé að slitna frá,“ segir hann.

Þá kemur fram að vaktmaður hafi verið á skipinu og því hafi uppgötvast fljótt hvað var á seyði.

„Viðbragðsaðilar voru ræstir út og áhöfnin á skipinu sömuleiðis. Báðir skipstjórarnir á Vilhelm Þorsteinssyni, þeir Guðmundur og Birkir Hreinsson, komu á vettvang og tóku þátt í aðgerðum.“

Aðstæður voru krefjandi, en dráttarbátur aðstoðaði við að koma áhöfninni um borð í skipið í aftakaveðri og stórsjó.

„Fyrst var reynt stjórnborðsmegin en hreyfingin var svo mikil að ákveðið var að fara bakborðsmegin, nær landi þar sem veðrið var viðráðanlegra.“

Áskorun að komast um borð

Þar segir Guðmundur hins vegar ekki hafa verið opnar dyr og lausnin því verið að koma inn einum manni stjórnborðsmegin sem opnaði fyrir hinum.

„Áhöfnin gat þá hoppað úr lóðsinum í stiga á skipinu og um borð,“ segir hann.

Á þessum tíma voru tveir dráttarbátar komnir á svæðið og lögðust á árar með áhöfninni þannig að hægt væri að snúa og bakka.

„Það gekk mjög vel að koma vélunum í gang, ekkert sem hikstaði og ég hafði raunar aldrei áhyggjur af því,“ segir Guðmundur.

Fram kemur að átta menn hafi farið um borð í skipið og sinnt verkefninu af fagmennsku.

Vilhelm Þorsteinsson EA og lóðsbátur Hafnasamlags Norðurlands við Krossanes.

Vilhelm Þorsteinsson EA og lóðsbátur Hafnasamlags Norðurlands við Krossanes. Ljósmynd/Samherji/Súlur

Allir eiga hrós skilið

„Það voru allir yfirvegaðir. Menn eru klárir á sínu þegar svona kemur upp, fóru bara um borð og gengu í það sem þurfti að gera. Áhöfnin stóð sig frábærlega og á hrós skilið fyrir sína frammistöðu,“ áréttar Guðmundur.

Þá segir hann það sama eiga við um aðra viðbragðsaðila.

„Allir stóðu sig vel, hvort sem það voru starfsmenn hafnarinnar og áhöfn á lóðsbátunum, björgunarsveit, lögregla eða aðrir. Mig langar að nota tækifærið og þakka öllum sem að verkefninu komu og leystu það vel af hendi. Það var mikill léttir að ekki fór verr,“ segir hann.

Sjá má fleiri myndir frá vettvangi í umfjöllun Samherja.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅