Entist ekki lengi á Hornafirði

Craig Lecesne.

Craig Lecesne. Ljósmynd/Sindri

Sænski körfuboltamaðurinn Craig Lecesne hefur leikið sinn síðasta leik fyrir Sindra. Svíinn og félagið hafa komist að samkomulagi um að hann yfirgefi liðið.

Lecesne, sem er 29 ára, lék fimm leiki í úrvalsdeildinni á tímabilinu og skoraði að meðaltali 11 stig, tók átta fráköst og gaf 0,6 stoðsendingar í leik. Besti leikur hans var gegn Keflavík þegar hann skoraði 23 stig og tók tíu fráköst.

Í tilkynningu frá félaginu þakkar félagið Lecesne fyrir framlag hans og óskar honum alls hins besta innan vallar sem utan.

Sindri situr á botni deildarinnar og hefur tapað öllum sex leikjum sínum á tímabilinu.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅