Haukur segir flokkaflakk gróft brot á trúnaði við kjósendur: „Hver vill fá svikara í sínar raðir?“
Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 17. nóvember 2026 10:30
Ingvar Þóroddsson og Haukur Arnþórsson. Samsett mynd/KSJ
Haukur Arnþórsson stjórnsýslufræðingur segir það sé siðferðislega ekki hægt að þingmaður hætti í þeim stjórnmálaflokki sem hann var kjörinn á þing fyrir og fari að vinna sem þingmaður annars flokks, slíkt flokkaflakk breyti niðurstöðum kosninga og sé gróft brot á trúnaði við kjósendur.
Haukur fer ítarlega yfir það í færslu á Facebook hvort þingmaður geti siðferðislega, lagalega og pólitískt hætt í flokki og farið yfir í annan stjórnmálaflokk. Í gær tilkynnti Ingvar Þóroddsson að hann hefði yfirgefið Viðreisn og gengið til liðs við Sjálfstæðisflokkinn. Ingvar fór yfir það í ítarlegu máli hvers vegna hann hefði tekið þessa ákvörðun og nefndi meðal annars vonbrigði með skatta- og samgöngustefnu ríkisstjórnarinnar. Hann ætti ekki lengur samleið með stefnu sem þingflokkur Viðreisnar og ríkisstjórnin fylgi.
Sjá einnig: Ingvar Þóroddsson segir sig úr þingflokki Viðreisnar og gengur í annan flokk
Haukur segir að það sé munur á siðferðilegum, pólitískum og lagalegum rétti. Siðferðislega ekki hægt að þingmaður fari í annan flokk.
„Flokkaflakk breytir niðurstöðum kosninga. Eðlilegt er að kjósendur sætti sig ekki við slíkt. Þeir kusu á ákveðinn hátt og siðferðilega hefur enginn einn maður heimild til að breyta niðurstöðunum. Þá er mikið rætt um að jafna vægi atkvæða milli flokka. Það fer auðvitað úr skorðum við flokkaflakk,“ segir Haukur.
„Í vitund almennings er líka óheiðarlegt að hlaupast í raðir andstæðinga sinna. Þetta er spurning um hvað kjósendum finnst vera rétt og rangt og byggist á siðferðisvitund almennings. Hvað er heiðarlegt að gera og hvað er óheiðarlegt? Þetta er líka gróft brot á trúnaði við kjósendur. Sá trúnaður verður væntanlega aldrei endurreistur fremur en traust. Hvorki gagnvart kjósendum þingmannsins né kjósendum þess flokks sem tekur við flokkaflakkaranum.“
Út frá siðferðislegu sjónarmiði geti þingmaður ekki gert annað en segja af sér og taka inn næsta þingmann af framboðslista ef hann sé óánægður í eigin flokki.
Sennilega afskrifað sig sem stjórnmálamaður
Það gangi heldur ekki upp út frá pólitísku sjónarmiði.
„Við það hefur hann veikt sig, sennilega afskrifað sig, sem stjórnmálamaður. Fagnaður móttökuflokksins getur ekki orðið annað en falskur; hver vill fá svikara í sínar raðir? Enda hefur það sýnt sig að flokkaflakkarar eiga lítinn eða engan möguleika til endurkomu á þing. Baráttan innan nýja flokksins er of hörð fyrir þá,“ segir Haukur.
Varðandi lagalegu hliðina þá sé almennt litið á flokkaflakk sem löglegt en samkvæmt stjórnarskrá þá séu þingmenn einungis bundnir við sannfæringu sína. Haukur bendir á að þessi grein eigi rætur sínar í dönsku stjórnarskrána frá 19. öld þar sem hún þýddi að þingmenn þyrftu ekki að stunda kjördæmapot eða þjóna hagsmunaaðilum í kjördæminu sínu.
„Með ákvæðinu höfnuðu Danir því að þingmenn væru umboðsmenn (e. delegate) kjósenda og ættu að ganga erinda þeirra og kjördæmis síns. Ákvæðið segir hins vegar skýrt að þingmenn eigi að vera trúnaðarmenn (e. trustee) kjósenda sinna. Það þýðir að þeir eiga að beita eigin dómgreind til úrlausn mála. Þó þetta sé ennþá afdráttarlaus krafa í bæði íslensku og dönsku stjórnarskránni hættir einkum landsbyggðarþingmönnum til að líta á sig sem umboðsmenn ákveðinna hagsmuna,“ segir Haukur. Þegar flokkakerfið fór að þroskast þá var þetta ákvæði útvíkkað til að þingmenn séu ekki bundnir við fyrirmæli flokksins eða flokksforystunna.
„Núna er ákvæðið túlkað enn víðar og talið verja algert sjálfstæði þingmanna og þá þannig að þeir séu á engan hátt bundnir kjósendum sínum eða flokknum sínum. Það er nokkuð víð túlkun á ákvæði sem þýddi upphaflega að þingmenn ættu að vera trúnaðarmenn kjósenda sinna en ekki umboðsmenn. Það er því talið löglegt að þingmenn geti flakkað milli flokka.“
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗