Hildur hitti brotaþola Skeggja - „Þeim er trúað núna“

Ritstjórn DV

Ritstjórn DV

Þriðjudaginn 17. nóvember 2026 10:30

Mynd af Skeggja Ásbjarnarsyni: Skjáskot af Facebook-síðu Rásar 1.

Greint er frá því í tilkynningu frá Reykjavíkurborg að 25. september síðastliðinn hafi Hildur Björnsdóttir borgarstjóri átt fund með brotaþolum Skeggja Ásbjarnarsonar sem var um árabil kennari í Laugarnesskóla en kynferðisbrot Skeggja gegn nemendum í skólanum komu ekki upp á yfirborðið fyrr en mörgum árum eftir andlát hans. Skeggi var kennari í Laugarnesskóla frá 1943-1977 og lést 1981. Segir í tilkynningunni að kerfið hafi brugðist hópnum og þeim hafi ekki verið trúað en nú sé þeim trúað. Leggur Hildur á að hópurinn leiti réttar síns gagnvart ríkinu sem rak skólann á þeim árum sem Skeggi kenndi þar.

Í tilkynningu borgarinnar kemur fram að á fundinn hafi komið nokkrir brotaþolar Skegga og auk borgarstjóra hafi setið fundinn sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs og skólastjóri Laugarnesskóla ásamt fulltrúum Stígamóta sem hafi stutt við þann hóp um nokkurt skeið.

Rifjað er upp að upplýst hafi verið um brot Skeggja gagnvart fjölmörgum börnum og verið gerð skil, bæði í bók Bjargar Guðrúnar Gísladóttur, „Hljóðin í nóttinni“ og í umfjöllun Þorsteins J. Vilhjálmssonar á RÚV í þáttunum „Skeggi“. Þar hafi meðal annars verið varpað ljósi á alvarleg kynferðisbrot Skeggja gegn drengjum áratugum saman.

Óþekktur fjöldi

Segir enn fremur að ljóst sé að þessi hópur barna, sem ekki sé með vissu vitað hversu stór er, hafi mátt þola hluti sem aldrei ættu að koma fyrir nokkurt barn. Hópurinn hafi tekist á við alvarlegar afleiðingar ofbeldisins alla tíð sem hafi haft áhrif á líðan þeirra og heilsu. Hópurinn hafi lýst takmörkuðum viðbrögðum, þöggun og skorti á skilningi og stuðningi frá samfélaginu og viðeigandi yfirvöldum.

Segir loks í tilkynningunni:

„Augljóst er  að þeir aðilar og það kerfi sem átti að vernda börnin brást. Þolendum var ekki trúað, þeim var ekki mætt. En þeim er trúað núna. Borgarstjóri harmar mjög hlutskipti þeirra barna sem þurftu að ganga í gegnum þetta en dáist að sama skapi að hugrekki þeirra sem komu á fundinn reiðubúnir að segja sína sögu. Sú saga má aldrei falla í gleymsku, eins sársaukafull og skammarleg og hún er. Grunnskólar í borginni okkar eiga að vera griðastaður fyrir börnin okkar. Það er okkar sem tökum að okkur að stýra þeim að tryggja að svona hlutir endurtaki sig ekki, að verkferlar séu skýrir og úrræði séu til staðar þegar ofbeldi kemur upp. Öll börn, eiga að vera örugg í öllu skóla- og frístundastarfi og starfsfólki ber að hafa velferð og öryggi barna að leiðarljósi.“

„Borgarstjóri styður vegferð hópsins og leggur áherslu á að hann leiti réttar síns til ríkisins vegna sanngirnisbóta.“

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅